KVENNALIÐ enska knattspyrnufélagsins Chelsea er væntanlegt til landsins síðar í þessum mánuði í tengslum við hið árlega stúlknamót Breiðabliks í Kópavogi, Gullmót JB. Chelsea leikur í suðurriðli 1.
KVENNALIÐ enska knattspyrnufélagsins Chelsea er væntanlegt til landsins síðar í þessum mánuði í tengslum við hið árlega stúlknamót Breiðabliks í Kópavogi, Gullmót JB. Chelsea leikur í suðurriðli 1. deildar í Englandi og endaði þar í fjórða sæti á síðasta tímabili, tólf stigum á eftir Southampton sem vann sig upp í úrvalsdeildina. Ráðgert er að Chelsea leiki gegn úrvalsdeildarliði Breiðabliks og einnig gegn yngra úrvalsliði.