BIFREIÐ var stolið á Flúðum aðfaranótt sunnudags og ekið í átt að Reykholti þar sem þjófurinn og bíllinn enduðu ferð sína með því að aka út af og keyra á tré við Reykholt.

Þegar lögreglan á Selfossi kom að bílnum hafði kviknað í honum en ekki er vitað hvort eldurinn kviknaði við áreksturinn eða hvort þjófurinn kveikti í bílnum sjálfur. Er hans nú leitað af lögreglu.