JÓN Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá Dallas Mavericks, gerði fimmtán stig í fyrrinótt þegar Dallas vann kínverska landsliðið 97:85 í öðrum æfingaleik liðanna.

JÓN Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður hjá Dallas Mavericks, gerði fimmtán stig í fyrrinótt þegar Dallas vann kínverska landsliðið 97:85 í öðrum æfingaleik liðanna. Risinn Yao Ming lék ekki með Kínverjum að þessu sinni, er eitthvað meiddur, og því gat Jón Arnór ekki keyrt á hann og skotið yfir hann eins og hann gerði í fyrsta leik liðanna.

Jón Arnór lék lengstum í þessum leik sem skotbakvörður í stað þess að vera meira með boltann sem leikstjórnandi.