EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hefur sent öllum lögreglustjórum ábendingar varðandi lausagöngu búfjár og hvatt þá til að hlutast til um úrbætur í umdæmum þar sem þeirra er þörf.

EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hefur sent öllum lögreglustjórum ábendingar varðandi lausagöngu búfjár og hvatt þá til að hlutast til um úrbætur í umdæmum þar sem þeirra er þörf.

Embætti yfirdýralæknis og landnýtingarráðunautur Bændasamtaka Íslands hafa sent embætti ríkislögreglustjóra og fleirum tilkynningu um atriði er lúta að lausagöngu búfjár og hvernig sporna megi gegn því að einkum sauðfé, hross og nautgripir komist inn á vegsvæðin eins og dæmi eru um. Er tekið fram að þörf sé á aðstoð lögreglu til að fylgjast með og skrásetja hvar hætta er vegna ferða eða nálægðar búfjár og til að vara viðkomandi sveitarfélög og í sumum tilfellum eigendur búfjár og jarða við hættunni sem lausagöngu fylgir.

Stórfelld slysahætta

Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að nú fari í hönd mikil umferðarhelgi eins og flestar helgar sumarsins. Full ástæða sé til að hvetja ökumenn að sýna varúð þegar ekið er um vegi landsins og hafa í huga þá stórfelldu slysahættu sem stafað getur af lausagöngu búfjár.