DAGUR Kári Pétursson og Orri Jónsson í Slowblow skjótast inn á Tónlistann þessa vikuna, með plötuna sem er samnefnd hljómsveitinni. Platan hækkar sig um 12 sæti milli vikna, fer úr því 34. upp í það 22.
DAGUR Kári Pétursson og Orri Jónsson í Slowblow skjótast inn á Tónlistann þessa vikuna, með plötuna sem er samnefnd hljómsveitinni. Platan hækkar sig um 12 sæti milli vikna, fer úr því 34. upp í það 22. Slowblow fékk frábæra dóma hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins, sem gaf plötunni fimm stjörnur og kallaði hana "hreint mergjaða". Þeir félagar ættu því að hafa ærna ástæðu til að halda áfram í tónlistinni, þótt þeim sé ýmislegt annað vel til lista lagt.