ÍSLENSK kona sem slasaðist alvarlega í bílveltu í Langadal í fyrradag liggur á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Fjórir voru í bílnum, þar af tvö börn og slasaðist annað þeirra alvarlega en var ekki sett í gjörgæslu.
ÍSLENSK kona sem slasaðist alvarlega í bílveltu í Langadal í fyrradag liggur á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Fjórir voru í bílnum, þar af tvö börn og slasaðist annað þeirra alvarlega en var ekki sett í gjörgæslu. Að sögn læknis heldur konan meðvitund og er líðan hennar stöðug.