LÖGREGLAN á Blönduósi lagði hald á 65 grömm af hassi í fyrradag og handtók 25 ára mann grunaðan um að eiga efnin. Hann var í bíl með tveimur ungmennum vestan við Blönduós þegar þau lentu í úrtaki lögreglunnar við eftirlit.

LÖGREGLAN á Blönduósi lagði hald á 65 grömm af hassi í fyrradag og handtók 25 ára mann grunaðan um að eiga efnin. Hann var í bíl með tveimur ungmennum vestan við Blönduós þegar þau lentu í úrtaki lögreglunnar við eftirlit. Maðurinn hefur komið við sögu lögreglunnar áður vegna fíkniefnamála. Hann sagðist vera að flytja fíkniefnin til Akureyrar og neitaði að eiga þau. Við leit lögreglu í bílnum fannst einnig hnúajárn.

Málið er upplýst hjá lögreglunni og verður sent sýslumanni sem ákveður hvort höfðað verður opinbert mál á hendur manninum.