KONAN sem lést í bílslysi á Vatnsnesvegi í V-Húnavatnssýslu í fyrrakvöld hét Bohuslava Jaromerska, búsett í Prag ásamt fjölskyldu sinni. Hún var hér á ferð með manni sínum er slysið varð. Hún var fædd 21.
KONAN sem lést í bílslysi á Vatnsnesvegi í V-Húnavatnssýslu í fyrrakvöld hét Bohuslava Jaromerska, búsett í Prag ásamt fjölskyldu sinni. Hún var hér á ferð með manni sínum er slysið varð. Hún var fædd 21. janúar 1966 og lætur eftir sig eiginmann og tvö börn. Alls voru fimm erlendir ferðamenn í bílnum og liggur ein kona úr þeirra hópi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi og er tengd við öndunarvél eftir aðgerð í fyrrinótt. Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá lögreglunni á Blönduósi.