Tónlist | Sumarhópur á vegum Hins Hússins, heldur lokatónleika sína í Iðnó í kvöld kl. 20.
Tónlist | Sumarhópur á vegum Hins Hússins, heldur lokatónleika sína í Iðnó í kvöld kl. 20. Hópinn skipa: Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari, Gyða Valtýsdóttir sellóleikari, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari. Á efnisskránni má finna íslenska rímnadansa og þjóðlög ásamt austur-evrópskum tregatónum. Leikin verða verk eftir Ibert, Kodalý, Gubaidalina, Jón Leifs/Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgisson og Shostakovitch undir kaffi og kertaljósum. Aðgangur er ókeypis.