Strætó keyrði út af í Kópavogi.
Strætó keyrði út af í Kópavogi. — Morgunblaðið/Árni Torfason
ENGIN meiðsl urðu á fólki þegar mannlaus strætisvagn brá undir sig betra dekkinu og rann út af götu við skiptistöðina á Kópavogshálsi.

ENGIN meiðsl urðu á fólki þegar mannlaus strætisvagn brá undir sig betra dekkinu og rann út af götu við skiptistöðina á Kópavogshálsi. Að sögn lögreglu gleymdi ökumaður að setja vagninn í handbremsu og þegar hann steig út rann vagninn af stað og hafnaði utan vegar á Borgarholtsbraut.

Óhappið vakti athygli nærstaddra og fylgdust forvitnir fótgangendur með framgangi mála.