PHARMANOR hf . og AGR hafa undirritað samning um kaup á innkaupa- og birgðastýringarhugbúnaðinum AGR Innkaup, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
PHARMANOR hf . og AGR hafa undirritað samning um kaup á innkaupa- og birgðastýringarhugbúnaðinum AGR Innkaup, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Meginmarkmið innleiðingarinnar er að ná fram hagræðingu í birgðastýringu, hækkun á þjónustustigi og aukningu í sjálfvirkni innkaupaferlisins.

AGR Innkaup útbýr söluspár sem taka tillit til sölusögu, árstíðasveiflna, söluherferða og tilboða. Aðferðir birgðastjórnunar og nákvæmar spáaðferðir eru notaðar til að gera innkaupatillögur fyrir einstaka vörur, vöruflokka eða allar vörur viðkomandi birgja. Kerfið tekur einnig tillit til gámaflutninga og kemur með innkaupatillögur sem lágmarka heildar birgða- og flutningskostnað.