HAGNAÐUR af rekstri Baugs Group var á bilinu 2-3 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt innanhússuppgjöri félagsins, að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra samstæðunnar. Hann segir eigið fé félagsins komið yfir 30 milljarða króna.

Hagnaður Baugs á síðasta reikningsári, sem var aðeins tíu mánuðir vegna breytinga á reikningstímabili, var 9,5 milljarðar og var að meginstofni vegna óinnleysts gengishagnaðar af fjárfestingum félagsins í Bretlandi. Í afkomutilkynningu, sem birt var í júní, var eigið fé sagt 27,9 milljarðar.