MÍNUS-menn eru seigir, því rúmlega ári eftir að Halldór Laxness kom út er platan a tarna komin aftur inn á Tónlistann, í 29. sæti. Þeir feðgar Krummi og Björgvin eru því báðir á listanum þessa vikuna, Bo með Duet í 18. sæti, sama sæti og í síðustu viku.
MÍNUS-menn eru seigir, því rúmlega ári eftir að Halldór Laxness kom út er platan a tarna komin aftur inn á Tónlistann, í 29. sæti. Þeir feðgar Krummi og Björgvin eru því báðir á listanum þessa vikuna, Bo með Duet í 18. sæti, sama sæti og í síðustu viku. Nýjasta myndband Mínusa er við lagið The Long Face, sem nýlega var valið smáskífa vikunnar í breska tímaritinu Kerrang! Þeim drengjum virðist því ganga flest í haginn þessa dagana.