ATLI Guðnason, 19 ára framherji úr FH, hefur verið lánaður til HK, toppliðsins í 1. deild, og verður löglegur með Kópavogsliðinu í kvöld þegar það tekur á móti Val í toppslag deildarinnar.

ATLI Guðnason, 19 ára framherji úr FH, hefur verið lánaður til HK, toppliðsins í 1. deild, og verður löglegur með Kópavogsliðinu í kvöld þegar það tekur á móti Val í toppslag deildarinnar.

Atli hefur spilað einn deildarleik með FH-ingum en hann kom inn á sem varamaður í tapleik FH á móti Fylki í 2. umferð Íslandsmótsins. Atli er mikill markaskorari og vann sér það til frægðar fyrr í sumar að skora tvær þrennur á einum sólarhring. Hann skoraði þrjú síðustu mörk FH sem lagði Ægi, 5:0, í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar og degi síðar lék hann sama leikinn með U-23 ára liði FH í 6:1 sigri á Val á Íslandsmóti U-23 ára liða.