Umboðsmaðurinn eða Trevor's World of Sport er bresk gamanþáttaröð í sjö þáttum. Söguhetjan, Trevor, er umboðsmaður íþróttamanna og reynir að halda andlitinu þótt aðstæður hans séu ákaflega erfiðar.
Það eru brestir í hjónabandi hans, sonur hans er til eilífra vandræða og umbjóðendur hans hugsa ekki um neitt annað en sjálfa sig.
Í þættinum í kvöld bregst Sammy, nánasti viðskiptafélagi Trevors, trausti hans og það sama á við um son hans og tvo viðskiptavini. Hann getur þó enn treyst konunni sinni...eða hvað?
Með aðalhlutverkið fer Neil Pearson.
Umboðsmaðurinn eða Trevor's World of Sport er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld klukkan 20.35. |