Polskie-tríóið verður meðal gesta á Reykholtshátíð um helgina: Tomasz Bartoszek píanóleikari, Arkadiusz Dobrowolski sellóleikari og Sebastian Gugala fiðluleikari.
Polskie-tríóið verður meðal gesta á Reykholtshátíð um helgina: Tomasz Bartoszek píanóleikari, Arkadiusz Dobrowolski sellóleikari og Sebastian Gugala fiðluleikari. — Morgunblaðið/Eggert
Tónlistarhátíð í Reykholti verður haldin í Reykholtskirkju dagana 23.-25. júlí 2004. Hátíðin hefst á opnunartónleikum föstudaginn 25. júlí kl. 20, þar sem flutt verður tónlist eftir Wolfang Amadeus Mozart.

Tónlistarhátíð í Reykholti verður haldin í Reykholtskirkju dagana 23.-25. júlí 2004. Hátíðin hefst á opnunartónleikum föstudaginn 25. júlí kl. 20, þar sem flutt verður tónlist eftir Wolfang Amadeus Mozart. Á tónleikunum koma fram Auður Hafsteinsóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari og Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari. Auk þess mun Trio Polskie frá Varsjá flytja píanótríó eftir meistarann. Á laugardag kl. 15 verða söngtónleikar þar sem Elín Ósk Óskarsdóttir sópran mun flytja íslensk og norræn lög og þekktar óperuaríur ásamt Steinunni Birnu. Að kvöldi laugardags mun Trio Polskie leika píanótríó eftir Haydn, Beethoven og Schubert. Tríóið skipa Tomasz Bartoszek píanóleikari, Sebastian Gugala fiðluleikari og Arkadiusz Dobrowolski sellóleikari.

Sigur á sigur ofan

Pólverjarnir koma hingað gagngert til að leika á Reykholtshátíðinni. Hljóðfæraleikararnir þrír stunda allir kennslu, en eru jafnframt allir margverðlaunaðir sem einleikarar. Þeir hafa leikið saman frá 1999 og hlotið fjölda viðurkenninga, pólskra og erlendra, sem framúrskarandi kammerhópur. "Við unnum til fyrstu verðlauna í alþjóðlegu Brahms-keppninni í Gdansk ári eftir að tríóið var stofnað," segir sellóleikari hópsins, Arkadiusz Dobrowolski, en sú viðurkenning átti eftir að verða þeim happafengur á fleiri vegu. "Þar hittum við Henry Mayer úr La Salle-kvartettinum, sem bauð okkur að taka þátt í Isaac Stern Music Workshop í Carnegie Hall í New York. Við tókum því boði og dvöldum í New York í þrjár vikur og nutum á meðan leiðsagnar mjög flinkra kammermúsíkmeistara úr Guarnieri-kvartettinum og fleiri. Mánuði eftir að við unnum í Brahms-keppninni unnum við svo aftur í Lantier-keppninni í París, og svo síðar í fleiri keppnum. Í dag leikum við á tónlistarhátíðum og tónleikum um allan heim."

Arkadiusz Dobrowolski segir reynsluna úr Carnegie Hall hafa verið Polskie-tríóinu mjög mikilvæga og leiðsögn reyndu mannanna í faginu mjög góða. Auk þess hafi námskeiðið skapað gagnleg tengsl við aðra kammermúsíkhópa. Hann segir það líka mikilvægt að þótt meðlimir tríósins stundi sjálfir kennslu leiti þeir líka leiðsagnar sér reyndari tónlistarmanna. "Allir tónlistarmenn ættu stöðugt að reyna að læra meira og leita nýrra leiða í þeim efnum. Þetta starf krefst ævilangrar endurnýjunar og stöðugs lærdóms."

Dobrowolski segir Polskie-tríóið hafa sérhæft sig nokkuð í tónlist klassíska tímans, sérstaklega Haydn og Beethoven, en leiki nýrri verk. Tríóið hefur gefið út geisladisk með verkum Haydns, annar, með tríóum eftir Mauricio Kagel, kemur út síðar á þessu ári. Þá hafa þeir einnig gefið út disk með Kvartett um endalok tímans eftir Messiaen, með öðrum tónlistarmönnum.

Gott að spila nýja tónlist

Löng kammermúsíkhefð er í Póllandi, og þar eru tónskáld enn að semja fyrir þessa sígildu hljóðfæraskipan. "Við eigum bæði góða kammermúsíkhópa og góð verk eftir góð tónskáld. Ég nefni þar bara sem dæmi tríóin eftir Panufnik og Malawski. Við erum enn að bíða eftir að fyrir okkur verði samið, en við eigum vinkonu - mjög gott tónskáld - sem við vonumst til að semji verk fyrir okkur. Það er nefnilega gott að spila nýja tónlist, þótt klassíkin sé auðvitað mjög mikilvæg fyrir svona hóp. Í svona hóp þarf maður í raun að geta spilað hvað sem er, - alls konar tónlist frá öllum tímum."

Lokatónleikar hátíðarinnar verða svo á sunnudaginn kl. 16 og verða þar flutt verk eftir Beethoven, Grieg og Schumann auk þess sem frumflutt verður verk eftir Þórð Magnússon fyrir sópran, píanó og selló við texta Snorra Sturlusonar. Þórður var nýlega tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Flytjendur á lokatónleikunum verða allir þátttakendur hátíðarinnar. Listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar er Steinunn Birna Ragnarsdóttir.