Djass í Deiglu | Djasskvintettinn B-Sharp leikur á fimmta Heita fimmtudeginum í Deiglunni í kvöld, 22. júlí kl. 21.30.
Djass í Deiglu | Djasskvintettinn B-Sharp leikur á fimmta Heita fimmtudeginum í Deiglunni í kvöld, 22. júlí kl. 21.30.

Kvintettinn skipa Simon Jermyn, írskur gítarleikari og upphafsmaður bandsins, Ólafur Jónsson og Jóel Pálsson saxófónleikarar, Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Erik Qvick trommuleikari. Leikin verður tónlist eftir meðlimi kvintettsins sem og eftir djasstónlistarmenn af ungu kynslóðinni, m.a. Reid Anderson frá Bandaríkjunum og Per Texas Johansson frá Svíþjóð.