Innri Njarðvík | Það telst nú vart til tíðinda þegar fólk ákveður að byggja sér sólpall, slíkt er nánast daglegt brauð á Íslandi yfir sumartímann. Við Lágseylu 3 í Innri-Njarðvík hefur sólpallurinn hins vegar mjög sérkennilega hatta og hann á sér vart sinn líka, þótt víða væri leitað.
Húsráðendurnir, hjónin Halldór A. Brynjólfsson og Elísabet Ólafsdóttir, leyfðu elsta syni sínum að hafa frjálsar hendur við lokafrágang pallsins og eru hæstánægð með útkomuna. "Þessi hugmynd kviknaði nú bara allt í einu hjá mér og ég byrjaði á því að móta tvo fugla þar sem pallurinn er lægstur. Eftir það varð ekki aftur snúið og ég er að verða búinn með annað hornið," sagði Ólafur Árni Halldórsson, grafískur hönnður og listamaður, sem blaðamaður Morgunblaðsins greip við útskurðinn.
Það er ekki á hverjum degi sem maður verður vitni að störfum listamanns undir berum himni og Ólafur Árni hefur svo sannarlega vakið athygli íbúa í Seyluhverfinu í Innri- Njarðvík. Hver staurinn á fætur öðrum fær á sig nýja mynd meðan listamaðurinn stendur uppi í stiga með slípirokk í hönd.
Myndin ræðst af staurnum
Að sögn Ólafs Árna ákveða staurarnir oftast sjálfir hvernig hatt þeir vilja bera. "Ég skoða staurana gaumgæfilega áður en ég byrja, virði fyrir mér sprungur og hæðina á þeim og síðan kemur myndin smám saman í huganum."Ólafur Árni er nú hálfnaður við verkið, hefur lokið við 7 staura af 14 og það verður spennandi að sjá hvernig afraksturinn verður fullkláraður. "Á því horni sem ég er búinn með er sjávarútvegsþema, enda er pabbi nýkominn í land eftir 60 ár á sjónum og til margra ára ráku þau, og síðar ég í samfloti, saltfiskverkun í Ytri Njarðvík, þannig að ég þekki þetta svo vel. Ætli ég hafi svo ekki höfrunga- og hafmeyjaþema hinum megin, þar sem heiti potturinn er. Það væri við hæfi."
Halldór og Elísabet fylgjast með af miklum áhuga enda vita þau ekkert hvað kemur hverju sinni og aðspurð sögðust þau himinlifandi yfir þessu "uppátæki" sonarins. "Hann ræður þessu alfarið," sagði Halldór í samtali við blaðamann.
Sker út rekavið í bílskúrnum
Þó Ólafur Árni hafi fengist við listsköpun frá barnsaldri og sé hámenntaður í listageiranum segist hann aldrei hafa fengist við slíkar pallaskreytingar áður og segist þora að fullyrða að þessi pallur sé sá eini sinnar tegundar."Ég er nú reyndar að vinna að allt öðru hér inni í bílskúr hjá mömmu og pabba, en nota við það sama verkfæri. Ég er að skera út muni í rekavið sem ég fann úti á Reykjanesi og stefni að því að sýna afraksturinn á Vest Norden kaupstefnunni í Laugardalshöllinni í september," sagði Ólafur sem lauk B.F.A. prófi með heiðri frá The American College (nú American InterContinental University) í Atlanta í Georgíu með grafíska hönnun sem sérgrein árið 1996. Hann kennir nú hönnun og smíði í Holtaskóla í Reykjanesbæ ásamt því að vinna við listsköpun af ýmsu tagi. "Það er nú held ég fátt sem ég hef ekki prófað við listsköpun. Ég hef notað allar tegundir lita og málningar og notað alls kyns efni, bæði til að vinna með og skreyta."
Blaðamaður lýkur heimsókninni á því að fletta í gegnum möppu með verkum Ólafs Árna, sem hann tók saman fyrir yfirlitssýningu á Ljósanótt í Reykjanesbæ árið 2003. Þar má meðal annars sjá forláta lampa skreyttan með úrskornu kýr- og nautshorni. Lampa þennan gerði Ólafur Árni í handavinnu þegar hann var 12 ára og með verkinu braut hann blað í sögu Barnaskólans í Keflavík, ásamt skólasystur sinni Sveindísi Valdimarsdóttur, og fékk 10 í handavinnu. Það þarf því ekki að koma á óvart að hann skyldi feta þessa braut.