VINNUSLYS varð við Áfangafell á Kjalvegi síðdegis í gær, þegar maður féll af vörubílspalli og slasaðist alvarlega. Var fallið mjög hátt og úlnliðsbrotnaði maðurinn og kenndi mikilla eymsla í baki og herðablöðum auk þess sem hann átti erfitt um...
VINNUSLYS varð við Áfangafell á Kjalvegi síðdegis í gær, þegar maður féll af vörubílspalli og slasaðist alvarlega. Var fallið mjög hátt og úlnliðsbrotnaði maðurinn og kenndi mikilla eymsla í baki og herðablöðum auk þess sem hann átti erfitt um andardrátt. Þá hlaut hann nokkra höfuðáverka. Var maðurinn fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.