BRÚÐARBANDIÐ samanstendur af sjö föngulegum konum á aldrinum 26 til 32 ára. Þær eru alltaf íklæddar brúðarkjólum þegar þær spila á tónleikum, þær vilja bleikt vatn í allar sundlaugar landsins, vilja meira rokk og fleiri konur að rífa kjaft.
Þessar viljasterku konur heita Melkorka, Katla, Unnur María, Sunna, Gugga, Eygló og Sigga. Þær voru að gefa út sína fyrstu plötu, Meira!, og í kvöld fara útgáfutónleikarnir fram. Þær Gugga og Eygló settust niður með blaðamanni Morgunblaðsins af þessu tilefni.
Öll lögin okkar eru frumsamin," segir Gugga. "Við semjum lögin saman á æfingum en textarnir koma meira í heilu lagi frá hverri og einni. Það er samt engin sérstök regla á þessu hjá okkur. Við notum það sem hljómar vel."
Einkennismerki sveitarinnar eru eflaust brúðarkjólarnir. En hvernig ætli sú hugmynd hafi komið upp?
"Upphaflega átti þetta að vera myndlistarverkefni hjá einni okkar, að hafa sjö stelpur í brúðarkjólum. Einhvern veginn varð þetta svo hljómsveit og við byrjuðum bara að spila," segir Eygló.
Þótt nokkrar sjömenninganna hafi lært á hljóðfæri byrjuðu þær allar saman frá grunni í tónlistarsköpuninni.
"Við þurftum meira að segja að fá hjálp til að læra á magnara og að skipta um strengi í upphafi," rifjar Gugga upp.
Ekki virðast þessir byrjunarörðugleikar þó hafa háð sveitinni því nú, rúmu hálfu ári eftir stofnun hennar, eru í uppsiglingu útgáfutónleikar fyrstu breiðskífunnar.
"Þegar maður miklar ekki hlutina fyrir sér og lætur ekkert stoppa sig þá gengur þetta upp," segir Gugga.
"Kannski er hluti af velgengninni líka eftirspurn eftir stelpum að rokka," segir Eygló.
Gugga segir það bæði hafa orðið þeim til framdráttar og ekki að þær eru yfirlýst stelpuband.
"Fólk er yfirleitt mjög jákvætt en einstaka sinnum heyrum við einhverja neikvæðni og vantrú. En við látum það ekkert á okkur fá," segir Gugga.
Hún segir jafnframt þann misskilning algengan að sé maður stelpa í rokkhljómsveit verði maður að vera bitur og reiður. Það þvælist þó ekki fyrir Brúðarbandinu enda standa þær í hljómsveitarbröltinu vegna skemmtanagildis.
"Það er mikill húmor í textunum okkar," segir Gugga. "Þó að við tökum hljómsveitina auðvitað alvarlega pössum við alltaf að hafa húmor fyrir sjálfum okkur."
www.brudarbandid.biz |
Útgáfutónleikar Brúðarbandsins fara fram í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Hljómsveitin Skátar hitar upp fyrir sveitina. Húsið opnað klukkan 21. Aðgangseyrir er 500 krónur. |
birta@mbl.is