Michael Jackson hefur hafnað fullyrðingum tímarita og dagblaða, þess efnis að hann eigi von á fjórburum, að því er frá greinir í frétt BBC . Bandaríska tímaritið US Weekly greindi frá því að leigumóðir í Flórída gengi með fjögur börn Jacksons.
Michael Jackson hefur hafnað fullyrðingum tímarita og dagblaða, þess efnis að hann eigi von á fjórburum, að því er frá greinir í frétt BBC. Bandaríska tímaritið US Weekly greindi frá því að leigumóðir í Flórída gengi með fjögur börn Jacksons.

Blaðið Sun vitnaði síðar í bandarískan blaðamann, sem sagði konuna aðdáanda stjörnunnar og kynni þeirra hefðu hafist með þeim hætti að hún hefði ritað honum bréf og lýst yfir stuðningi við hann í tengslum við ákærur á hendur honum um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

Jackson, sem er 45 ára og á þrjú börn, sagði í yfirlýsingu að hann "hafnaði því að umræddar fréttir væru réttar" ...