Enn er talsverð offramleiðsla á kjúklingum.
Enn er talsverð offramleiðsla á kjúklingum.
Á síðustu 2-3 árum hefur kjötmarkaðurinn á Íslandi gengið í gegnum mikla erfiðleika. Verð á kjöti lækkaði mikið í kjölfar offramboðs og afleiðingarnar urðu gjaldþrot stórra framleiðenda.

Á síðustu 2-3 árum hefur kjötmarkaðurinn á Íslandi gengið í gegnum mikla erfiðleika. Verð á kjöti lækkaði mikið í kjölfar offramboðs og afleiðingarnar urðu gjaldþrot stórra framleiðenda. Markaðurinn er nú að ná auknu jafnvægi, en segja má að menn séu ekki búnir að jafna sig á afleiðingum þeirrar niðursveiflu sem varð á árunum 2002-2003, sem sumir hafa lýst sem "mjög dýru námskeiði".

Það ójafnvægi sem varð á kjötmarkaðinum skapaðist fyrst og fremst af stórauknu framboði á kjúklingum og svínakjöti. Auk þess hefur verið mikið framboð á lambakjöti, en útflutningur á því var aukinn til muna í fyrra og verður áfram mikill í ár.

Um síðustu áramót urðu stórir aðilar á kjötmarkaðinum gjaldþrota og má þar nefna Móakjúkling, Íslandsfugl á Dalvík, Svínabúið í Brautarholti og Ferskar afurðir á Hvammstanga. Fleiri gengu í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu eins og t.d. kjúklingaframleiðandinn Reykjagarður. Segja má að þessi umskipti hafi ásamt fleiru orðið til þess að meira jafnvægi komst á markaðinn.

Dregið hefur verulega úr framleiðslu á svínakjöti. Framleiðslan á síðustu 12 mánuðum er 6% minni en 12 mánuðina þar á undan. Ef horft er á framleiðslu síðustu mánaða er samdrátturinn enn meiri. Þetta hefur leitt til verulegrar verðhækkunar á svínakjöti. Verðið var í algjöru lágmarki í desember í fyrra, en samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur verðið hækkað frá áramótum um 53%. Það kann að hljóma sem gríðarleg hækkun, en hafa verður í huga að verðið á svínakjöti núna er svipað og það var um mitt ár 2002. Frá því í ágúst 2002 fram til ársloka 2003 lækkaði svínakjötsverð um rúmlega 50%.

35% lækkun á kjúklingum á tveimur árum

Ennþá er hins vegar ójafnvægi á markaði fyrir kjúklinga. Undanfarna mánuði hefur framleiðslan verið heldur meiri en salan. Verð á kjúklingum hefur því haldist lágt allt þetta ár. Verð á kjúklingum er núna um 35% lægra en það var fyrir tveimur árum, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Ekkert bendir til að kjúklingaverð sé að hækka. Verðið hefur t.d. lækkað um 10,7% frá áramótum.

Framleiðsla á kjúklingum hefur þó heldur dregist saman. Framleiðslan á síðustu 12 mánuðum er t.d. 4,1% minni en hún var 12 mánuðina þar á undan. Þessi samdráttur virðist hins vegar ekki vera nægur því að markaður virðist ekki vera fyrir allt þetta kjöt.

Það bætir svo ekki stöðu kjúklingaframleiðenda að verð á innfluttu fóðri hefur verið að hækka. Afkoma í greininni er því ennþá slök þó að fyrirtækin séu búin að afskrifa mikið af gömlum skuldum í tengslum við gjaldþrot og fjárhagslega endurskipulagningu.

Góð sala á lambakjöti

Sala á lambakjöti hefur gengið vel að undanförnu. Salan síðustu þrjá mánuðina er 11% meiri en sömu mánuði í fyrra. Markaðsstaða lambakjötsins styrkist eðlilega eitthvað þegar svínakjöt er ekki lengur boðið til sölu á hálfvirði eins og var í fyrrasumar.

Það er hins vegar framleitt miklu meira af lambakjöti en markaður er fyrir innanlands. Ársframleiðslan nemur um 8.800 tonnum en salan er um 6.500 tonn. Það sem ekki selst innanlands er selt úr landi á ábyrgð bænda. Vel gekk að selja lambakjötið úr landi, en verðið hefur hins vegar ekki verið hátt, eða á bilinu 150-200 krónur á kíló til bænda. Stærstur hluti kjötsins fór á um 150 kr.

Verð á lambakjöti til bænda lækkaði um 8% í fyrra vegna almennrar lækkunar á kjötverði. Óljóst er hvort verð til bænda hækkar aftur í haust til samræmis við það sem var haustið 2002. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, telur raunar ólíklegt að sláturleyfishafar hækki verðið svo mikið í einu skrefi. Þetta sé til skoðunar þessa dagana. Hann telur þó að verð fyrir útflutt lambakjöt hækki um 10-15 kr/kg.

Sala á nautakjöti er jafnan nokkuð stöðug þó að mikið gangi á á öðrum kjötmörkuðum. Að undanförnu hefur heldur vantað kjöt inn á markaðinn. Framleiðslan hefur líka verið að aukast, en hún jókst um tæplega 8% í síðasta mánuði.

Ef horft er á kjötmarkaðinn í heild þá hefur sala á síðustu 12 mánuðum minnkað um 0,4%, en framleiðslan hefur dregist saman um 2,4%. Þar munar mest um minni framleiðslu á svínakjöti og kjúklingum. Verð á kjöti hefur hækkað um 6,5% frá áramótum, en neysluverðsvísitala hefur hækkað um 2% á sama tíma. Ef horft er 18 mánuði aftur í tímann hefur kjötverð hins vegar hækkað um 2,5% á meðan vísitalan hefur hækkað um 4,5%.

egol@mbl.is