Borghildur Kristín Magnúsdóttir fæddist á Hólum í Steingrímsfirði 13. ágúst 1915. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 12. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Magnús Steingrímsson, bóndi og hreppstjóri á Hólum í Steingrímsfirði, og Kristín Árnadóttir, húsfreyja á Hólum. Borghildur var yngst sex systkina en hin voru Ingimundur Tryggvi, 1901-1933, Steingrímur, 1903-1924, Guðbrandur, 1907-1994, Skúli, 1908-1940 og Petrína, 1911-1991. Fósturbræður Borghildar voru Elías Jónsson og Steingrímur Loftsson sem báðir eru látnir.
Einkasonur Borghildar er Magnús Haraldsson, tæknifræðingur í Reykjavík, f. 7. maí 1948, kvæntur Kristjönu Gísladóttur. Börn þeirra eru: a) Gísli Þór, í sambúð með Kristínu G. Sæmundsdóttur, og b) Borghildur Kristín. Barnabarnabörn Borghildar eru Pétur Már og Hildur Una Gíslabörn.
Árið 1962 giftist Borghildur Magnúsi Ingimundarsyni frá Bæ í Króksfirði, f. 1901, d. 1982. Magnús var ekkjumaður og átti átta uppkomin börn og eitt fósturbarn þegar hann kvæntist Borghildi. Yngstur þeirra er Gunnlaugur, f. 1945, sem bjó á heimili föður síns og Borghildar um nokkurra ára skeið.
Borghildur gekk í húsmæðraskólann á Laugalandi veturinn 1938-39. Haustið 1944 fékk hún sveinsbréf í kjólasaumi og vorið 1945 einnig í kvennaklæðskurði. Þremur árum síðar öðlaðist hún meistararéttindi í þessum greinum. Hún starfaði síðan að iðn sinni, en var einnig ráðskona í vegagerð nokkur sumur, ráðskona hjá Búnaðarfélagi Íslands um skeið, og í nokkur ár stundaði hún búskap með Magnúsi manni sínum á Kletti í Geiradal.
Útför Borghildar verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Í bljúgri bæn og þökk til þín. Þetta var eitt það fyrsta sem kom upp í huga mér, er við litla fjölskyldan sátum við dánarbeð ástkærrar tengdamóður minnar. Margs er að minnast og margs að þakka eftir 38 ástkær og farsæl ár sem aldrei bar skugga á.
Frá því við hittumst fyrst er ég kom á heimili Borghildar og Magnúsar, hefur faðmur hennar ætíð verið opinn mér. Hún tók mér ekki bara sem tengdadóttur, heldur nánast sem dóttur. Ég gleymi aldrei fyrsta matarboðinu til hennar. Það var á sólríkum vordegi og sonurinn átti 18 ára afmæli. Þar voru nokkrir úr fjölskyldunni saman komnir til að fagna og sjálfsagt til að skoða mig. Þar á meðal var systir hennar Petrína sem var mér einnig eins og tengdamóðir. En hún eignaðist aldrei börn sjálf og var Maggi minn augasteinninn hennar eins og móður sinnar.
Það voru erfið sporin eftir gangstéttinni þar sem þær systur biðu okkar á tröppunum til að heilsa mér og gera þetta sem þægilegast fyrir mig. Þegar inn var komið blasti við það fallegasta uppdekkaða borð sem ég hafði séð. Allt það fínasta var borið fram, postulín, kristall og silfur. Ekki dró úr fegurðinni að allt glitraði þetta í sólinni við fallega handverkið hennar, sem allir þekkja sem henni kynntust. Frá þeirri stundu hefur hún borið mig á höndum sér og allt viljað fyrir mig og fjölskylduna gera. Það vorum ekki bara ég og fjölskyldan sem fengum að njóta verka hennar og ótakmarkaðrar hjálpar heldur nánast allir sem henni kynntust. Við áttum margar yndislegar stundir saman og líka erfiðar í veikindum mínum. Þá stóð hún eins og klettur við hlið mér og alltaf náðum við að brosa aftur. Á árum áður þurfti hún að hafa talsvert fyrir lífinu, sérstaklega þegar hún ung stúlka annaðist um sjúka systur sína og þær nokkrum árum seinna ólu saman upp son Borghildar. Ég gæti skrifað mikið meira um þessa stórbrotnu og glæsilegu konu en læt hér staðar numið.
Nú þegar að leiðarlokum er komið, vil ég þakka henni fyrir allt það andlega og veraldlega sem hún gaf mér og fjölskyldu minni af sinni einstöku umhyggju og hlýju, sem ég mun að eilífu geyma í hjarta mínu. Handverkið hennar mun ætíð ylja mér og gleðja. Góð mamma gleymist aldrei. Guð blessi minningu hennar.
Kristjana.
Ég var heppin í æsku. Ég átti nefnilega tvær föðurömmur, systurnar sem ólu pabba upp, amma Bogga og frænka (Petrína). Þær voru ólíkar en samrýndar og mótaðist ég af áherslum, skoðunum og lífsmottóum þeirra.
Amma áleit að maður væri metinn af verkum sínum. Hjálpsemi, vandvirkni og dugnaður eru orð sem lýsa henni.
Hún var iðin og einstaklega lagin í höndunum, alltaf við saumaskap eða postulínsmálun. Víða liggja eftir hana listavel gerðir hlutir og á ég marga slíka með fangamerki okkar. Ég man vel þegar hún eitt sinn lét draum minn rætast í æsku. Þá hafði ég trúað henni fyrir því að mig langaði alveg sérstaklega í kjól eins og stelpurnar í sjónvarpsþáttunum "Húsinu á sléttunni". Hún saumaði þennan dýrindis kjól, mér leið eins og prinsessu og hún var heimsins besta amma. Í dag er hún allsstaðar nálægt á heimili mínu þar sem hún saumaði notalegasta sængurverið mitt, bjó til jóladúk sem ég held sérstaklega upp á og get dekkað upp með jólakaffistellinu sem hún málaði. Þegar ég kúri við sjónvarpið vöðla ég um mig teppinu með fangamerki okkar á. Það er alltaf notalegt að hafa ömmu nálægt í hvaða mynd sem það birtist. Þegar ég gisti hjá henni stjanaði hún við mig á alla kanta, fór iðulega með mig í Vesturbæjarlaugina og eldaði og bakaði allt sem var í uppáhaldi hjá mér.
Uppi á vegg hjá mér hanga einföld spakmæli: Ráðið til að eiga vini er að vera vinur. Vinamörg var hún og sinnti þeim af alúð. Ef hún var ekki að sauma eða mála í seinni tíð, var hún í heimsókn einhversstaðar og iðulega tekinn með heimabakstur eða blómvöndur. Ósjaldan eftir heimsóknirnar kom hún svo til baka með flíkur sem þurfti að laga eða hannyrðir vinkvennanna sem þurfti að klára.
Hún var hæglát, raungóð og fljót til hjálpar ef einhversstaðar bjátaði á. Í seinni tíð sátum við stundum saman og spjölluðum. Þá spurði hún mig um vinahópinn minn. Ef hún hafði einhvern pata af að einhverjir þeirra væru að ganga í gegnum tímabundna erfiðleika minnti hún mig á að vera til staðar fyrir þá og svo fylgdist hún með hvernig úr rættist.
Þó að sárt sé að sjá á eftir þeim sem maður elskar kveð ég þig sátt þar sem ég veit að þér auðnaðist löng og góð ævi. Ég trúi því líka og treysti að ég muni ávallt finna fyrir nærveru þinni og að þú munir heimsækja mig í draumi svo við getum brallað eitthvað saman líkt og við frænka gerum stundum.
Vertu blessuð elsku amma.
Borghildur Kr. Magnúsdóttir.
Nú hefur dauðinn lagt sína líknandi hönd yfir ástkæra föðursystur mína, Borghildi Kristínu. Hún óskaði þess að fá að hverfa héðan eftir erfið veikindi og varð henni að ósk sinni. Hún var yngst systkina sinna sem fæddust og ólust upp á Hólum í Steingrímsfirði. Faðir minn (Guðbrandur) dó fyrir 10 árum, þar á undan kvaddi Petrína. Þrír bræður dóu langt fyrir aldur fram, öllum mikill harmdauði. Nú eru Hólar löngu farnir í eyði og hefur tíminn lagt sína hönd yfir bæjarrústirnar, svo að varla mótar fyrir húsatóftunum. Þannig líða kynslóðir hjá og smám saman fyrnist yfir allt og nú hefur hún kvatt síðust þeirra sem lifðu og hrærðust á Hólum. Amma mín, Kristín, var þar mikil og myndarleg húsmóðir og má segja að hún hafi verið ekta íslensk sveitakona sem klæddist alltaf peysufötum, trúði á álfa og sagðist oft hafa séð bláklædda álfkonu í dalnum ekki langt frá bænum. Afa mínum, Magnúsi, kynntist ég því miður aldrei.
Bogga (eins og hún var kölluð af sínum nánustu) stendur okkur, sem hana umgengumst, ljóslifandi fyrir sjónum. Stórglæsileg, myndarleg með blik í móbrúnum augum, fallega brosið hennar og stórir spékoppar, há kinnbein og enni, hendurnar einhverjar þær fallegustu sem ég hef séð. Þetta voru engar venjulegar hendur. Þær voru gæddar töfrum. Allt sem þær snertu varð bæði fallegt, gott og ljúffengt. Allt sem Bogga festi hönd á varð snortið göldrum. Hún saumaði, bróderaði, málaði, eldaði og töfraði allt mögulegt og ómögulegt fram. Bogga var listamaður af guðs náð, en jafnframt menntuð í kjólasaumi og var hún meistari í þeirri grein. Var það ekki ónýtt að eiga slíka frænku, sem gat saumað á mann glæsifatnað úr næstum engu, eins og ég fékk að reyna, fyrst 11 ára gömul. Þannig var, að ég fór suður til hennar í heimsókn. Þá var verið að sýna My Fair Lady í Þjóðleikhúsinu og ákveðið var að ég mætti fara á sýningu. En nú voru góð ráð dýr, ekkert fínt til að fara í. En hún Bogga bjargaði því. Fann eitthvert grænköflótt efni (ég hallast helst að því að það hafi verið borðdúkur eða gamlar gardínur) og úr þessu varð svo fallegur kjóll að það er alveg með ólíkindum að hugsa til þess hvað hún gat. Í þessum glæsikjól, settum rykkingum og blúndum, fór ég svo í Þjóðleikhúsið. Og þannig gekk ég í hamarinn, inn í álfabyggðina, uppáklædd og fín eins og álfkonan hennar ömmu minnar forðum. Ég get fullyrt það að mér fundust búningarnir á sviðinu og kjólarnir hennar Völu Kristjáns ekki komast í hálfkvist við búninginn minn. Og enn var hún að, mörgum áratugum seinna, töfrandi fram listaverk. Það eru ekki nema tvö ár síðan hún gaf mér átta litla dúka, alla saumaða með harðangurs- og klaustursaumi. Það eru gersemar sem ég mun hafa í öndvegi.
Ég kveð mína kæru frænku með söknuði, votta öllum þeim sem unnu henni og elskuðu hana mína dýpstu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Kristín Guðbrandsdóttir.
Þessi glaðværa kona átti létt með að nálgast börn og unglinga, bæði sanngjörn og umburðarlynd, og þeir eiginleikar hennar urðu mér dýrmætari gjöf en flestar aðrar í lífinu. Mitt elsta barn ól ég í skjóli hennar, sautján ára einstæð móðir. Þótt Boggu yrði á að dæsa yfir kunnáttuleysi unglinganna í getnaðarvörnum fann ég hvern dag meðgöngunnar að með viðmóti sínu var hún meira en sammála Kristínu ömmu minni, sem þá bjó á heimili hennar og taldi allt líf sem kviknaði í móðurkviði "guðs gjöf" og bæri að taka sem slíkri.
Um árabil hélt Borghildur heimili í Reykjavík með Petrínu systur sinni og saman ólu þær upp Magnús son Boggu, augastein beggja og eftirlæti. Síðar gekk Bogga í hjónaband með Magnúsi Ingimundarsyni, miklum öðlingi. Þó voru þessar ólíku systur alltaf samferða meðan báðar lifðu. Bogga var atorkukonan, manneskja framkvæmdanna, en Pettý hæglátari og stundum eins og hugsuðurinn í því sambandi. Þannig bættu þær hvor aðra upp á þann hátt sem góðar systur geta gert. Petrína studdi Boggu með íhygli sinni, en hagleikskonan systir hennar launaði með dýrlegum flíkum sem voru þeirrar náttúru að geta leynt því sem leyna þurfti hjá Petrínu. Hún bar samfallið lunga eftir erfið veikindi á unga aldri, en þegar Petrína var komin í flíkurnar sem Borghildur hafði saumað var varla að sjá að hún bæri þessa byrði. Og Pettý var ekki ein um það að njóta góðs af gáfum Boggu. Það er til marks um samband þeirra systra að þegar Petrína féll frá sótti slíkt þunglyndi um skeið að þessari glaðlyndu saumakonu að hún fékk ekki varist. En yfirvann það samt eins og allt annað.
Ekki fékk frænka mín þó varist hrörnun sinni frekar en aðrir menn. Þar sem hún lá lömuð eftir heilablóðfall, en með óbrenglaða hugsun og dómgreind, óskaði hún þess eins að þurfa ekki að lifa við kröm og upp á aðra komin. Og auðvitað varð þessari gæfukonu að ósk sinni.
Magnúsi frænda mínum og hans fjölskyldu færi ég innilegar samúðarkveðjur fjölskyldu minnar. Blessuð sé minning Borghildar Magnúsdóttur.
Anna Gígja Guðbrandsdóttir.
Okkur systur langar til að þakka Borghildi fyrir öll þau góðu og innihaldsríku samskipti sem við áttum í gegnum árin og ekki síst þann stuðning og góðvild sem við áttum alltaf vísa hjá henni.
Það var alltaf ljúft að heimsækja Borghildi og afa á Klett og á Hagamelinn og síðan Borghildi á Aflagrandann. Hún átti mjög fallegt heimili og var myndarleg húsmóðir. Hún tók alltaf vel á móti okkur, lagði á borð og bauð upp á veitingar og henni þótti alveg ómögulegt ef ég vildi ekki þiggja af henni annað en vatnsglas og spurði hvaða kúr ég væri nú komin í. Henni þótti nú ekki mikið til þess koma að bjóða upp á vatn enda rausnarleg við sitt fólk og góður gestgjafi.
Það var alltaf gaman að tala við hana og það var hægt að ræða um allt á milli himins og jarðar, hún hafði áhuga á öllu og hennar skoðanir voru alltaf ferskar og skemmtilegar. Hún var hrein og bein og sagði sína meiningu, hún var ung í anda og með góða kímnigáfu og oft laumaði hún út úr sér skemmtilegustu athugasemdum sem geymast með minningu um góða og fallega konu.
Ég veit að það er mömmu mikið áfall að missa Borghildi því þær áttu mikil samskipti alla tíð og áttu gott og traust samband sín á milli. Við dánarbeð pabba stóð hún eins og klettur við hlið allrar fjölskyldunnar og sat með mömmu svo dögum skipti uppi á spítala og veitti okkur öllum af óendanlegum styrk sínum og hlýju.
Við kveðjum þig, elsku Borghildur, með djúpu þakklæti í hjarta og biðjum góðan guð að geyma þig og gefa fjölskyldu þinni styrk.
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir, Laufey Anna
Ingimundardóttir.
Elskuleg vinkona mín Borghildur Magnúsdóttir hefur kvatt þennan heim á miðju sumri og minningarnar sem hún skilur eftir sig eru bjartar og hlýjar. Leiðir okkar lágu fyrst saman sem litlar stelpur heima á Ósi í Steingrímsfirði, en þar bjuggu foreldrar hennar í sjö ár. Hún var sex ára en ég fjögurra ára. Hún hefur verið mér sem besta systir allar götur síðan og aldrei slitnað upp úr þeim vinskap. Eftir að Bogga fluttist aftur að Hólum í Staðarsveit með foreldrum sínum skrifuðumst við á, en pósturinn fór hálfsmánaðarlega innan sveitar. Þá var hvorki sími né útvarp. Sextán ára gömul fór Bogga til Reykjavíkur og lærði saumaskap hjá Aðalheiði Stefánsdóttur á Vesturgötunni. Seinna fór hún í Iðnskólann og aflaði sér sérréttinda til að sauma kápur og dragtir. Saumaskapur varð eitt af hennar aðalstörfum. Einn hvítan kjól saumaði hún svo fínan að hún varð að hafa hann innan í hvítum poka á meðan hún faldaði hann. Fyrst saumaði hún í heimahúsum, en eftir stríð setti hún upp saumastofu með vinkonu sinni Rúnu Guðmundsdóttur og ráku þær hana í nokkur ár. Margar fallegar flíkur saumaði Bogga á mig og mín börn.
Ég kveð þig síðast allra litla leiksystirin mín,
við löngum höfum saman reynt að gleðjast.
Í hinsta sinni vina ég horfi í augun þín,
það er heilög stund er góðir vinir kveðjast.
Um leið og ég og fjölskylda mín þökkum Boggu samfylgdina sendum við syni hennar Magnúsi Haraldssyni, fjölskyldu hans, ættingjum og vinum samúðarkveðjur.
Ása G. Kristjánsdóttir frá Ósi.