— AP
LEIKARINN Ralph Fiennes hefur verið valinn til þess að leika hinn illa Voldemort í næstu kvikmynd um Harry Potter, sem heitir Eldbikarinn.

LEIKARINN Ralph Fiennes hefur verið valinn til þess að leika hinn illa Voldemort í næstu kvikmynd um Harry Potter, sem heitir Eldbikarinn. Þá hefur Warner Bros, sem framleiðir Harry Potter-kvikmyndirnar, greint frá því að Miranda Richardson hafi fengið hlutverk blaðamannsins Ritu Skeeter í Eldbikarnum, að sögn Ananova. Daniel Radcliffe verður að vanda í hlutverki Harrys Potters og Rupert Grint og Emma Watson leika Ron Weasley og Hermione Granger. Voldemort er helsti óvinur Harrys Potters í bókunum um galdrastrákinn, en þeir tengjast órjúfanlegum böndum í gegnum þær.

Fiennes, sem er 41 árs Breti, hefur meðal annars leikið í kvikmyndunum Maid In Manhattan, Red Dragon, English Patient, Schindler's List og Quiz Show. Hann verður fyrsti leikarinn til þess að taka að sér hlutverk hins illa Voldemorts, sem hefur einungis sést sem nokkurs konar andi í fyrstu þremur kvikmyndunum.

Tökur eru þegar hafnar á Eldbikarnum, sem verður tekin til sýningar árið 2005. Leikstjóri kvikmyndarinnar er Mike Newell, en hann leikstýrði kvikmyndinni Four Weddings and A Funeral, að því er fram kemur á vefsvæði BBC.