Kornungur Cruise.
Kornungur Cruise.
SKJÁR einn sýnir í kvöld kvikmynd frá árinu 1983 sem var ein sú fyrsta til að koma stórleikaranum Tom Cruise á kortið.

SKJÁR einn sýnir í kvöld kvikmynd frá árinu 1983 sem var ein sú fyrsta til að koma stórleikaranum Tom Cruise á kortið. Í Risky Business segir af menntaskólapilti sem gerir allt vitlaust þegar ríkir foreldrar hans fara í frí, meðal annars eyðileggur hann bíl föður síns og kemst í háska með vændiskonu, sem átti að losa hann við hinn óþolandi "hreins sveins" stimpil.

Eins og áður segir fer Tom Cruise með aðalhlutverkið og var hann 21 árs þegar myndin var gerð. Áður hafði hann farið með aukahlutverk í Taps og Utangarðsdrengjunum (The Outsiders).

Risky Business er á dagskrá Skjás eins klukkan 21.45.