— Ljósmynd/Ágúst Jónas Elíasson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
SLÖKKVILIÐIÐ í Stykkishólmi var kallað út seinnipartinn í gær, en kviknað hafði í vörubíl rétt fyrir utan bæinn, og var grafa aftan á palli bifreiðarinnar, en tækin voru í eigu Borgaverks. Sáu tveir menn, sem í bifreiðinni voru, að reyk lagði undan...
SLÖKKVILIÐIÐ í Stykkishólmi var kallað út seinnipartinn í gær, en kviknað hafði í vörubíl rétt fyrir utan bæinn, og var grafa aftan á palli bifreiðarinnar, en tækin voru í eigu Borgaverks. Sáu tveir menn, sem í bifreiðinni voru, að reyk lagði undan henni. Komu þeir sér þá út og sakaði ekki, en hús vörubílsins varð fljótt alelda. Bíllinn er ónýtur og að öllum líkindum grafan líka, að sögn lögreglunnar á Snæfellsnesi.