ÞAÐ ER ekki gott að vinna á fastandi maga og á það jafnt við um óeirðalögreglumenn sem aðra. Þessir filippseysku lögreglumenn gæða sér hér á hádegismat íklæddir fullum viðhafnarskrúða.

ÞAÐ ER ekki gott að vinna á fastandi maga og á það jafnt við um óeirðalögreglumenn sem aðra. Þessir filippseysku lögreglumenn gæða sér hér á hádegismat íklæddir fullum viðhafnarskrúða.

Það er að gefnu tilefni þar sem öflug mótmæli hafa staðið yfir að undanförnu í úthverfum Manila.

Mótmælin snúast gegn forseta landsins, Gloria Macapagal Arroyo, og lýsa mótmælendur yfir vantrú á hæfileika hennar til að standa við gefin loforð um að sporna gegn fátækt og spillingu.