Við kveðjum í dag með miklum söknuði góðan félaga og vin. Eiríkur Jónsson var góður og traustur maður, hann sat í stjórn Korpúlfa, félags okkar eldri borgara í Grafarvogi. Hann var þar mjög virkur félagi og vann vel að öllum þeim málum sem hann tók sér fyrir hendur.

Elsku Sjöfn, hugur okkar allra er hjá þér og við vottum þér okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímamótum.

Félagar í Korpúlfum.