Heiðar D. Bragason
Heiðar D. Bragason
Mosfellsbær | Heiðar D. Bragason, golfmaður úr Golfklúbbnum Kili, var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2004 á dögunum, en hann var einnig íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2003.
Mosfellsbær | Heiðar D. Bragason, golfmaður úr Golfklúbbnum Kili, var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2004 á dögunum, en hann var einnig íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2003. Heiðar hefur verið í landsliði Íslands í golfi frá árinu 1999 og var valinn í allar keppnisferðir sem landsliðið tók þátt í á þessu ári, þar á meðal Evrópumót einstaklinga og heimsmeistaramót landsliða á Púertó Ríkó. Heiðar sigraði á Opna spænska áhugamannamótinu og Opna velska áhugamannamótinu, og er í 6.-8. sæti á lista áhugamannakylfinga í Evrópu.