Ég kveð þig með söknuði, elsku amma, en veit að þú ert nú í friði hjá Guði og umvafin hlýju ástvina þinna sem áður voru horfnir úr þessum heimi. Ég hefði svo mjög viljað fylgja þér seinasta spölinn og geri það í huga mínum og hjarta. Ég mun ávallt heiðra minningu þína, þú hefur kennt mér svo margt sem ég vona að mér takist að kenna mínum börnum.
Meira