Þegar ég var í Íþróttamiðstöðinni á Akranesi miðvikudaginn 2. september síðastliðinn, sagði Hallgrímur Ólafsson mér að mín kæra vinkona og skoðanasystir, Kristín, systir hans, hefði látist þá um morguninn. Mér varð hverft við og varð hugsað til þeirra hjóna, Kristínar og Kristmundar, sem hafa verið sem eitt í öllum gerðum á sameiginlegri lífsleið.
Meira