Grillaður lambahryggur með bestu sósu í heimi

00:00
00:00

Þessi upp­skrift er með þeim vandaðari sem sög­ur fara af. Hér erum við með grillaðan lambahrygg sem er al­gjört sæl­gæti og er svo ein­stak­lega fal­leg­ur á diski.

Sós­an sem hér er með er mögu­lega besta sósa sem sög­ur fara af og það er alltaf viðeig­andi að bjóða upp á grillað græn­meti með.

Grillaður lambahrygg­ur með grilluðu græn­meti og Mar­okkógrillsósu

  • 2 lambahryggs­bit­ar (um 6 tind­ar í bita), fitu­hreinsaðir og snyrt­ir
  • ⅓ bolli canola-olía
  • ¼ tsk kos­her-salt
  • ¼ tsk nýmalaður svart­ur pip­ar
  • 1 bolli Mar­okkógrillsósa (upp­skrift hér að neðan)

Saltaðu og pipraðu lambahryggs­bit­ana og dreyptu ólífu­olíu yfir. Penslaðu bit­ana með Mar­okkógrillsósu. Hitaðu grillið upp í meðal­hita og grillaðu bit­ana í 5 mín­út­ur á hvorri hlið. Penslaðu bit­ana aft­ur þegar þú ert bú­inn að snúa þei. Taktu af grill­inu og láttu kjötið hvíla í 5 mín­út­ur til að halda þeim safa­rík­um. Skerðu bit­ana með bein­inu og berðu fram með græn­met­inu og feta­osts-hind­berjasós­unni.

Mar­okkógrillsósa

  • 2 kanilstang­ir
  • 1 stjörnu­anís, heill
  • 1 tsk. heil kar­dimommu­fræ
  • 1 tsk. heil­ir neg­ulnagl­ar
  • 1 msk. blandaður heill pip­ar
  • 1 tsk. múskat
  • 1 tsk. malað kórí­and­ur
  • 1 bolli hrís­grjóna­e­dik
  • 1 hvít­lauks­geiri, flysjaður og gróf­hakkaður
  • 1 msk flysjað og rifið ferskt engi­fer
  • 1 ½ tsk. hvít­lauks-chil­isósa
  • 2 ½ bolli hun­ang
  • ½ bolli sojasósa
  • 1 bolli tóm­atsósa
  • ½ bolli söxuð fersk flat­blaðastein­selja
  • ¼ bolli fersk­ur límónusafi

Hitaðu pönnu að miðlungs­hita. Settu kanil, stjörnu­anís, kar­dimomm­ur, neg­ul, pip­ar, múskat og kórí­and­ur á pönn­una og hitaðu vel í eina mín­útu til að rista krydd­in. Bættu ed­iki, hvít­lauk, fersku engi­feri, hvít­lauks-chil­isósu, hun­angi, sojasósu, tóm­atsósu, stein­selju og límón­ustafa sam­an við og láttu suðuna koma upp. Lækkaðu hit­ann niður í miðlungs­hita og láttu malla í 20-30 mín­út­ur þar til soðið hef­ur niður um 2/​3. Sós­an á þá að hafa kara­mellu­kennda áferð. Síaðu gegn­um fínt sigti í ílát. Ef þú not­ar ekki alla sós­una geym­ist hún í allt að viku í ís­skáp.

Grillað græn­meti með feta­osts- og hind­berja dress­ingu

½ rauð paprika, fræhreinsuð
½ gul paprika, fræhreinsuð
½ app­el­sínu­gul paprika, fræhreinsuð
1 gult grasker ská­skorið í rúm­lega 25 mm þykk­ar sneiðar
1 kúr­bít­ur ská­skor­inn í rúm­lega 25 mm þykk­ar sneiðar
1 stór rauður lauk­ur, flysjaður og skor­inn í sneiðar,
u.þ.b. 25 mm þykk­ar
2 spergil­skáls­stilk­ar, tekn­ir í grein­ar
2 heil­ir portobello-svepp­ir, stilk­ur­inn fjar­lægður og skál­in hreinsuð
3 msk extra jóm­frúaró­lífu­olía
1 tsk. sjáv­ar­salt
1 tsk. nýmalaður svart­ur pip­ar
½ bolli feta­ost­ur

Hind­berja-sósa á græn­metið:

  • 3 msk. extra jóm­frúaró­lífu­olíu
  • 1 msk. hind­berja­e­dik
  • ¼ tsk. salt og pip­ar eða eft­ir smekk


Blandaðu græn­met­inu sam­an í skál og dreyptu ólífu­olíu yfir. Saltaðu og pipraðu og blandaðu vel sam­an. Hitaðu grillið upp í miðlungs­hita og grillaðu græn­metið í 3 mín­út­ur á hvorri hlið þar til það er orðið gyllt en þó enn stökkt. Taktu græn­metið af grill­inu og kældu lít­il­lega. Skerðu græn­metið í stóra bita og settu í skál. Þeyttu sam­an hind­berja­e­dikssós­una, helltu yfir græn­metið. Myldu feta­ost yfir og berðu fram með grilluðum lambahryggn­um.

mbl.is/​Gunn­ar Kon­ráðsson
mbl.is