Grillaðar rækjur í sítrónu- og engiferkryddlegi

00:00
00:00

Rækj­ur eru stór­kost­lega van­metið hrá­efni en hér gef­ur að líta upp­skrift sem ætti að æra hvaða bragðlauk sem er.

Grillaðar sítr­ónu- og engi­ferkrydd­lagðar rækj­ur með kraum­andi sítr­ónugras- og chil­isósu

  • Börk­ur af einni límónu 
  • Safi úr tveim­ur fersk­um app­el­sín­um 
  • 2 vor­lauk­ar (hvíti og græni hlut­inn), skorn­ir í þunn­ar sneiðar 
  • 2 msk. hun­ang 
  • 5 senti­metra biti af fersku engi­feri, flysjað og þunnsneitt 
  • ½ tsk. kos­her-salt 
  • ½ tsk. nýmalaður, svart­ur pip­ar 
  • 1 rauður chil­ipip­ar, fræhreinsaður og skor­inn í þunn­ar sneiðar

Blandaðu öllu sam­an í skál og þeyttu sam­an. Settu krydd­lög­inn í skál (eða renni­lá­s­poka) með rækj­un­um. Láttu þær standa í a.m.k. klukku­stund fyr­ir grill­un.

Hrá­efni í sítr­ónugras- og chil­isós­una

  • 1 ½ bolli saxaður skalottu­lauk­ur 
  • ¼ bolli flysjað ferskt engi­fer 
  • 2 græn­ir chil­ipiparávext­ir, sneidd­ir og fræhreinsaðir 
  • 1 rauður chili, fræhreinsaður og saxaður  
  • ¾ bolli flysjað og saxað engi­fer 
  • 3 msk. saxað sítr­ónugras 
  • 6 maca­da­mia-hnet­ur 
  • 2 msk. túr­merik 
  • 2 þétt­full­ar msk púður­syk­ur 
  • 1 msk. paprika 
  • 1 tsk. malað kórí­and­er 
  • 4 saxaðir hvít­lauks­geir­ar 

 

  • 2 msk. ólífu­olía 
  • 1 bolli vatn 
  • 1 lár­viðarlauf 
  • 110 grömm rjóma­ost­ur 
  • 1 bolli rjómi 

 

Settu allt á efri hrá­efn­islist­an­um í mat­vinnslu­vél, en ekki ólífu­olíu, vatn, lár­viðarlauf, rjóma­ost og rjóma. Láttu vél­ina ganga þar til úr verður þykkt mauk. 

Settu ólífu­olí­una í pott við miðlungs- til háan hita. Bættu mauk­inu úr mat­vinnslu­vél­inni út í pott­inn og hrærðu þar til það brún­ast lít­il­lega og er farið að ilma. Bættu vatn­inu og lár­viðarlauf­inu sam­an við. Lækkaðu hit­ann ögn og láttu krauma í 4 mín­út­ur þar til megnið af vatn­inu er gengið inn í maukið en það er enn slétt og rjóma­kennt. Flyttu yfir í skál og fjar­lægðu lár­viðarlaufið. Þeyttu rjóma­ost­inn sam­an við og bættu svo rjóm­an­um var­lega sam­an við.  

Settu í skál og láttu kólna. 

 

Hrá­efni í rækjup­inn­ana: 

  • 12 pillaðar og hreinsaðar ris­arækj­ur með sporði, krydd­lagðar í sítr­ónu- engi­ferkrydd­legi.  
  • 12 bambus- eða viðargrillp­inn­ar, látn­ir liggja í vatni í a.m.k. 30 mín­út­ur.  

Aðferð:

Taktu rækj­urn­ar upp úr krydd­leg­in­um og þræddu upp á pinn­ana. Grillaðu við háan hita í 2 mín­út­ur á ann­arri hliðinni, snúðu svo og grillaðu í 2 mín­út­ur á hinni þar til rækj­urn­ar verða bleik­ar. Berðu fram með suðrænu sal­ati og kraum­andi sítr­ónugras- og chil­isósu.

mbl.is/​Gunn­ar Kon­ráðsson
mbl.is
Loka