Stórbrotin T-bone steik með heimagerðri bernaise

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality
    Hér er á ferðinni hin goðsagna­kennda T-bone steik sem nú fæst í Hag­kaup. T-bone er bragðmik­il og skemmti­leg steik sem gam­an er að borða enda bragðast hún sér­deil­is vel.
    Stór­brot­in T-bone steik með heima­gerðri bernaise
    • T-bone steik­ur
    • SPG-krydd
    • Bakaðar kart­öfl­ur
    • Svepp­ir með papriku­osta­fyll­ingu
    • Piccolo-tóm­at­ar
    • Orig­inal BBQ sauce frá Saus.Guru

    Aðferð:

    1. Kryddið steik­urn­ar áður en þær fara á grillið og penslið þær þar með BBQ-sósu.
    2. Setjið græn­metið á grillið og grillið uns til­búið.
    3. Látið kjötið hvíla í 10 mín­út­ur eft­ir að það er tekið af grill­inu.
    4. Berið fram með bernaise-sós­unni.

    Bernaise í bland­ara

    • 300 g smjör ósaltað – brætt
    • 3 eggj­ar­auður
    • 3 msk. fáfn­is­gras (estragon)
    • 1/​4 tsk. cayenne-pip­ar
    • 1 tsk. salt
    • ½ tsk. pip­ar
    • 1 tsk. li­mes­afi
    • 1 msk. bernaise-es­sens

    Aðferð:

    1. Bræðið smjörið. Þeytið eggj­ar­auðurn­ar vel í bland­ar­an­um. Hellið smjör­inu mjög var­lega sam­an við. Bætið es­sens­in­um og lime-saf­an­um við. Kryddið eft­ir smekk og hrærið sam­an.
    2. At­hugið að smjörið þarf að kólna aðeins og ná sirka stofu­hita áður en því er hellt sam­an við.
    3. Ef hita á sós­una upp þarf að gera það hægt svo hún skilji sig ekki.

    All­ir grilla er sam­starfs­verk­efni mbl og Hag­kaups

    mbl.is