Risarækjurnar sem bragðast eins og humar

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Hér kynn­um við til sög­unn­ar eina þá mestu snilld sem við höf­um rek­ist á. Um er að ræða rauðar risa kóngarækj­ur sem bragðast frá­bær­lega. Rækj­ur eiga það til að verða seig­ar við eld­un en þess­ar voru ein­stak­lega bragðgóðar og grilluðust afar vel.

    Hér er því kom­inn spenn­andi val­kost­ur fyr­ir þá sem vilja gera vel við sig með ljúf­feng­um sjáv­ar­rétt­um en verðið á hum­ar hef­ur gert það að verk­um að hann er orðinn arg­asti sparimat­ur. Kóngarækj­urn­ar eru því al­gjör­lega málið og við get­um mælt heils­hug­ar með þeim.

    Ris­arækj­urn­ar sem bragðast eins og hum­ar

    Hér er búið að þræða þær upp á spjót ásamt græn­meti, sem kom vel út. Fyrst voru rækj­urn­ar kryddaðar, síðan penslaðar með heima­gerðri dress­ingu. Hægt er að velja alls kon­ar græn­meti og at­hugið að ekki þarf að grilla rækj­urn­ar lengi. Við mæl­um með að hafa grillið æp­andi heitt áður en byrjað er að grilla.

    • kóngarækj­ur
    • paprika
    • rauðlauk­ur
    • piccolo-tóm­at­ar
    • kúr­bít­ur
    • SPG-krydd

    Aðferð:

    1. Kryddið rækj­urn­ar með SPG-krydd­inu. Skerið græn­metið í frem­ur smáa bita.
    2. Penslið rækj­urn­ar með krydd­leg­in­um.
    3. Þræðið upp á spjót eða pinna. Ef þið notið trép­inna þá er nauðsyn­legt að leggja þá í bleyti áður til að þeir brenni síður.
    4. Grillið á háum hita í nokkr­ar mín­út­ur. Snúið reglu­lega og passið vel upp á pinn­ann. Nauðyn­legt er að hreinsa grillið vel áður og olíu­bera grind­ina svo að mat­ur­inn fest­ist ekki við grillið.

    Krydd­lög­ur

    • hvít­lauksrif
    • engi­fer
    • kórí­and­er
    • límóna
    • púður­syk­ur
    • ólífu­olía

    Aðferð:

    1. Rífið niður límónu­börk, hvít­lauksrif og engi­fer. Mæliein­ing­arn­ar hér eru svona sirka og akkúrat. Hér er lyk­il­atriðið að smakka til og finna gott jafn­vægi. Saxið kórí­and­er smátt og setjið sam­an við. Bætið púður­sykr­in­um við og kreistið saf­ann úr límón­unni sam­an við.
    2. Að síðustu skal hella ólífu­olí­unni yfir og hræra vel. Penslið á rækj­urn­ar og brauðsneiðarn­ar.
    3. Hér kynn­um við til sög­unn­ar eina þá mestu snilld sem við höf­um rek­ist á. Um er að ræða rauðar risakóngarækj­ur sem bragðast frá­bær­lega. Rækj­ur eiga það til að verða seig­ar við eld­un en þess­ar voru ein­stak­lega bragðgóðar og grilluðust afar vel. Hér er því kom­inn spenn­andi kost­ur fyr­ir þá sem vilja gera vel við sig með ljúf­feng­um sjáv­ar­rétt­um en verðið á humri hef­ur gert það að verk­um að hann er orðinn arg­asti sparimat­ur.
    mbl.is