Grilluð risarækju-tacos með maís, límónu, hrásalati og lárperu

Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

„Það er fátt sem mér þykir sum­ar­legra en grilluð ris­arækju-tacos. Hérna grilla ég líka maís með og sker svo korn­in frá stöngl­in­um, en maís­inn verður extra sæt­ur og góður svona grillaður,“ seg­ir Snorri Guðmunds­son, sem held­ur úti hinu skemmti­lega mat­ar­bloggi Mat & mynd­um.

Ris­arækj­ur virðast vera aðal­hrá­efnið í sum­ar enda ein­stak­lega góðar á grillið.

Sum­ar­leg grilluð ris­arækju-tacos með maís, límónu, hrásal­ati og lárperu

Fyr­ir tvo
  • 450 g ris­arækj­ur
  • 1 tsk. cummín
  • 1 tsk. reykt paprika
  • 1 tsk. hvít­lauks­duft
  • 200 g hvít­kál
  • 8 g kórí­and­er
  • 1 stk. límóna
  • 1 stk. hvít­lauksrif
  • 45 ml jap­anskt maj­ónes / má vera venju­legt
  • 6 tortilla­vefj­ur litl­ar
  • 2 ra­dís­ur
  • 1 lárpera
  • 1 maís­stöng­ull

Aðferð:

  1. Affrystið rækj­ur og setjið í skál með skvettu af olíu, kummíni, reyktri papriku, hvít­lauks­dufti og salti eft­ir smekk. Látið mar­in­er­ast í 30 mín. eða leng­ur.
  2. Sneiðið hvít­kál mjög þunnt, helst með mandó­líni (farið var­lega!). Saxið kórí­and­er. Setjið hvít­kál og kórí­and­er í skál með einu pressuðu hvít­lauksrifi, berki af hálfri límónu og japönsku maj­ónesi. Blandið vel sam­an og smakkið til með salti og límónusafa.
  3. Nuddið maís­stöng­ul með olíu og saltið. Grillið í um 10 mín. sam­tals en snúið reglu­lega.
  4. Þræðið rækj­ur á grillp­inna og grillið í um tvær mín­út­ur á hvorri hlið.
  5. Sneiðið lárperu og ra­dís­ur. Skerið maís­baun­irn­ar frá stöngl­in­um.
  6. Raðið sam­an hvít­laukslímónu, hrásal­ati, rækj­um, maís, lárperu og ra­dís­um. Toppið með upp­á­halds „hot“-sós­unni ykk­ar.
  7. Berið fram – þetta get­ur ekki klikkað!
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: