Lúxus-grillspjót með chimichurri

Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

„Fátt er betra en grill­spjót með góðu meðlæti og þessi til­teknu spjót tróna á toppn­um hjá mér. Ég nota í þau nauta­lund svo hver ein­asti biti sé meyr og góður og mar­in­era svo upp úr ein­faldri rós­marín-hvít­lauks­mar­in­er­ingu í að minnsta kosti 30 mín­út­ur en helst í um fjóra tíma, seg­ir Snorri Guðmunds­son meist­ara­kokk­ur sem held­ur úti mat­ar­blogg­inu Mat & mynd­um.

Hér er á ferðinni ein­stak­lega bragðgóður sparirétt­ur sem hitt­ir alltaf í mark enda bragðsam­setn­ing sem get­ur ekki klikkað. „Með þessu geri ég chimichurri en eins og mat­gæðing­ar vita get­ur chimichurri ekki klikkað með grilluðu kjöti.

Lúx­us-nauta­grill­spjót með chimichurri

Fyr­ir 3-4:
  • 800 g nauta­lund, skor­in í 4 cm bita
  • 6 grillp­inn­ar
  • 1 rauðlauk­ur
  • 1 rauð paprika
  • 2 stilk­ar rós­marín
  • 5 hvít­lauksrif /18 g
  • 120 ml ólífu­olía
  • 30 g breiðblaða stein­selja
  • 10 g kórí­and­er
  • ¾ tsk. þurrkað óreg­anó
  • ½ tsk. chili­f­lög­ur (eða eft­ir smekk)
  • 1 sítr­óna

Aðferð:

  1. Leggið grill­spjót­in í bleyti í 60 mín. áður en á að elda svo viður­inn brenni síður.
  2. Tínið rós­marín­lauf­in af stilkn­um og saxið smátt. Við vilj­um vera með sirka 2 msk. af söxuðu rós­maríni.
  3. Setjið kjötið í skál ásamt skvettu af olíu, söxuðu rós­maríni, 3 pressuðum hvít­lauksrifj­um (12 g) og 1 msk. af flögu­salti. Blandið vel sam­an og látið mar­in­er­ast í a.m.k. 30 mín.
  4. Saxið stein­selju og kórí­and­er mjög smátt. Setjið í skál ásamt 120 ml ólífu­olíu, chili­f­lög­um, óreg­anó, 1½ pressuðu hvít­lauksrifi (6 g) og 1 tsk. af flögu­salti. Kreistið um 1 msk. af sítr­ónusafa sam­an við og smakkið svo til með meiri hvít­lauk, salti og sítr­ónusafa ef þarf. Gott er að láta sós­una standa í a.m.k. hálf­tíma.
  5. Hitið grill upp í 200°C.
  6. Skerið lauk og papriku í bita svipaða að stærð og kjötið. Þræðið kjöt, lauk og papriku til skipt­is á grill­spjót­in og grillið í um 10 mín. en snúið á 2,5 mín. fresti.
  7. Berið spjót­in fram með t.d. grilluðum maís og sæt­um kart­öfl­um.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: