„Ég elska þessi kjúklingaspjót“

Ljósmynd/Snorri Guðmunds

Meist­ari Snorri Guðmunds hjá Mat & mynd­um á heiður­inn af þess­ari skemmti­legu upp­skrift hér sem hann seg­ir að sé al­gjör bragðbomba. Kjúk­ling­ur er alltaf vin­sæll á grillið og sett­ur í þenn­an bún­ing hér að hætti Snorra verður hann al­gjör­lega ómót­stæðileg­ur.

„Ég elska þessi kjúk­linga­spjót og geri þau reglu­lega fyr­ir okk­ur fjöl­skyld­una. Þau eru al­gjör bragðbomba og ég gæti drukkið satay-sós­una. Ef þú ert fyr­ir satay þá verðurðu að prófa þessa!

Grilluð satay-kjúk­linga­spjót

Fyr­ir 2-3

  • 600 g kjúk­linga­læri (skinn- og bein­laus)
  • 2 msk. taí­lensk karríblanda/​Krydd­húsið
  • 100 g litl­ar ag­úrk­ur
  • 1 stk. rautt chili
  • 5 g kórí­and­er
  • 20 g salt­hnet­ur
  • 1 dl kó­kos­mjólk
  • 50 g hnetu­smjör
  • 1 tsk. sojasósa
  • 1 msk. púður­syk­ur
  • 2 tsk. rautt karrímauk/​Thai choice
  • 1 stk. límóna
  • 150 g rauðkál
  • 4 stk. grillp­inn­ar

Aðferð:

  1. Leggið grillp­inna í bleyti a.m.k. 30 mín. áður en elda á mat­inn.
  2. Skerið kjúk­linga­lær­in í 3-4 bita (fer eft­ir stærð). Setjið í skál með olíu, salti og taí­lenskri karríblöndu. Blandið vel sam­an og látið mar­in­er­ast í a.m.k. 30 mín.
  3. Setjið kó­kos­mjólk, hnetu­smjör, sojasósu, púður­syk­ur, rautt karrímauk, 0,5 dl af vatni og kreistu af límónusafa í lít­inn pott og stillið á miðlungs­hita. Hrærið í þar til sós­an er byrjuð að þykkj­ast og allt hef­ur sam­lag­ast. Ef sós­an þykk­ist of mikið má þynna hana með ögn af vatni. Smakkið til með salti.
  4. Þræðið kjúk­ling­inn á spjót­in og grillið á 200°C heitu grilli í 10-12 mín. en snúið á 2 mín. fresti.
  5. Saxið hnet­ur, sneiðið rauðkál mjög þunnt, sneiðið chili, saxið kórí­and­er og sneiðið ag­úrk­ur.
  6. Penslið kjúk­linga­spjót­in með satay-sósu og stráið því næst chili, kórí­and­er og hnet­um yfir.
  7. Berið fram með auka satay-sósu til hliðar og hrís­grjón­um ef vill.
mbl.is