Kvöldmáltíðin sem sprengir alla skala

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það er ákveðinn staðall sem við fylgj­um til að úr­sk­urða hovrt að máltíð sé vel heppnuð og það sem við skil­grein­um sem yf­irliðsvald­andi.

Þessi upp­skrift úr smiðju Berg­lind­ar Heiðars á Gotteri.is fell­ur í þann flokk enda hef­ur hún all­nokkuð margt til að bera. Hún er bragðgóð, nokkuð ein­föld, ekki of hefðbund­in og meðlætið spreng­ir alla skala.

Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir

Spicy sæt­kart­öflu­sal­at og bal­sa­mik mar­in­erað nauta­kjöt

Fyr­ir um 4 manns

Sæt­kart­öflu­sal­at upp­skrift

  • 700 g sæt­ar kart­öfl­ur
  • 50 g Hell­mann‘s Chilli maj­ónes
  • 70 g Hell­mann‘s klass­ískt maj­ónes
  • ½ rauðlauk­ur (saxaður)
  • 1 tsk. saxað ferskt chilli
  • 2 rifn­ir hvít­lauks­geir­ar
  • 1 msk. sætt sinn­ep
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
  • Ólífu­olía

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200°C.
  2. Flysjið kart­öfl­urn­ar og skerið í munn­stóra ten­inga. Veltið upp úr um 3 msk. af ólífu­olíu og salti og pip­ar eft­ir smekk.
  3. Bakið í um 25 mín­út­ur eða þar til kart­öflu­bitarn­ir mýkj­ast, kælið síðan al­veg niður áður en sal­atið er út­búið.
  4. Pískið sam­an báðar teg­und­ir af maj­ónesi ásamt sinn­epi, chilli, hvít­lauk, salti og pip­ar.
  5. Blandið síðan sam­an kart­öfl­um, rauðlauk og maj­ónes­blöndu og berið fram með steik­inni.

Bal­sa­mik mar­in­erað ri­beye

  • 3-4 sneiðar ri­beye
  • 50 g ólífu­olía
  • 50 g bal­sa­mik edik
  • 50 g soya sósa
  • 40 g Worcesters­hire sósa
  • 1 tsk. Dijon sinn­ep
  • 2 rif­in hvít­lauksrif
  • ½ tsk. salt
  • ¼ tsk. pip­ar
  • Hrærið öllu sam­an nema kjöt­inu.
  • Hellið mar­in­er­ing­unni yfir kjötið í skál eða setjið í zip-lock poka svo lög­ur­inn um­lyki all­ar steik­urn­ar.
  • Plastið og mar­in­erið í um tvær klukku­stund­ir.
  • Grillið síðan á vel heitu grilli þar til kjarn­hiti er um 58°C og leyfið þeim að hvíla í um 10 mín­út­ur áður en þið skerið í þær.
Ljós­mynd/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is