Chablis-kjúklingur og 40 hvítlauksrif

Ragnar Ingvarsson elskar hvítlauk að eigin sögn og notar hann …
Ragnar Ingvarsson elskar hvítlauk að eigin sögn og notar hann óspart. youtube.com

Fjórði þátt­ur af Lækn­in­um í eld­hús­inu frá Ragn­ari Ingvars­syni er kom­inn í loftið. Í þess­um þætti sýn­ir hann okk­ur hvernig má mat­reiða kjúk­ling á tvo vegu. Hérna not­ar hann hvít­lauk óspart, dá­sam­lega girni­legt.

Chabl­is-kjúk­ling­ur

Þessi rétt­ur varð til á ferðalagi okk­ar fjöl­skyld­unn­ar um Frakk­land haustið 2009. Við leigðum okk­ur stór­an hús­bíl og keyrðum sem leið lá frá Svíþjóð til Frakk­lands í gegn­um Dan­mörku, Þýska­land og Hol­land. 

Þegar komið var til Chabl­is-héraðs stoppuðum við í bæ sem ber sama nafn og reynd­ist vera róm­an­tísk­ur smá­bær í norðan­verðu Búrg­únd­ar­héraði við bakka ár­inn­ar Serein. 

Við kom­um inn í bæ­inn síðdeg­is. Þegar við ókum yfir brúna inn í miðbæ­inn stóð yfir brúðkaup og allt var blóm­um skreytt. Við lögðum bíln­um í miðbæn­um og rölt­um í ró­leg­heit­um upp aðal­göt­una og sótt­um hrá­efni; kjúk­ling til slátr­ar­ans, fersk­an hvít­lauk, kantar­ellu­sveppi á græn­met­is­markaðinn, sýrðan rjóma, skalot­lauk og dijon-sinn­ep í litla kaup­fé­lagið við göt­una. 

Eft­ir að hafa staldrað við á kaffi­húsi ókum við í ró­leg­heit­um á vín­ekru Jean-Marcs Broch­ard og lögðum bíln­um við yf­ir­gefna kirkju og elduðum kvöld­verð. Og til varð þessi rétt­ur. 

Hrá­efni:

  • 1 heill kjúk­ling­ur
  • 3 msk Ed­mont Fallot dijon-sinn­ep
  • 4 hvít­lauksrif
  • 250 g kantar­ell­ur (eða aðrir svepp­ir)
  • 2 skalot­lauk­ar
  • salt og pip­ar
  • 400 ml sýrður rjómi
  • smjörklípa

Aðferð:

  1. Skerið hvít­lauk­inn og skalot­lauk­inn smátt og steikið í klípu af smjöri eða olíu þar til hann fer að mýkj­ast.
  2. Steikið niður­skorna svepp­ina í 5-10 mín­út­ur og gætið þess að brenna þá ekki, þeir eiga að taka lit og brún­ast en alls ekki brenna. 
  3. Á meðan svepp­irn­ir taka lit hlutið þið niður kjúk­ling­inn, bring­ur, leggi, læri og vængi. Saltið og piprið. 
  4. Takið græn­metið af pönn­unni, bætið smjörklípu út á hana og bræðið.
  5. Bætið kjúk­linga­bit­un­um á pönn­una með húðina niður og brúnið í 3-4 mín­út­ur. Snúið þeim svo við.
  6. Hrærið dijon-sinn­epið sam­an við sýrða rjómann.
  7. Bætið græn­met­inu við kjúk­ling­inn og því næst blönd­unni af sýrða rjóm­an­um og sinn­ep­inu. 
  8. Saltið og piprið og látið sjóða upp var­lega. 
  9. Setjið lok á pönn­una og eldið í 25 mín­út­ur þangað til kjúk­ling­ur­inn er eldaður í gegn.
  10. Berið fram með soðnum hrís­grjón­um og ein­földu sal­ati.


Kjúk­ling­ur með 40 hvít­lauksrifj­um

Hvít­lauk­ur er rauður þráður í þess­ari bók. Ég elska hvít­lauk og þessi rétt­ur er minn ástaróður til þessa dá­sam­lega hrá­efn­is. Ég er al­ger­lega sann­færður um heil­un­ar­mátt hvít­lauks, sama hvað niður­stöður tví­blindra rann­sókna segja. Fátt fer bet­ur með hvít­lauk en að baka hann í hýðinu með kjúk­lingi. Þegar kjúk­ling­ur­inn er bakaður hef­ur hvít­lauk­ur­inn soðnað og kara­mellíser­ast í hýðinu þannig að allt rammt bragð hef­ur breyst í ljúf­fenga hvít­lauks­sætu sem er svo góð að hægt væri að smyrja henni ofan á brauð.

Sum­ir myndu segja að það væri full­mikið af því góða að nota all­an þenn­an hvít­lauk en þegar
hann bak­ast á þenn­an hátt kem­ur hann næst­um í staðinn fyr­ir sós­una. En bara næst­um.

Hrá­efni

  • 1 heill kjúk­ling­ur
  • jóm­frúarol­ía
  • salt og pip­ar
  • ferskt tímí­an
  • 40 hvít­lauksrif
  • 1 gul­ur lauk­ur
  • 2 sell­e­rístang­ir
  • 2 gul­ræt­ur
  1. Nuddið kjúk­ling­inn upp úr jóm­frúarol­íu, tímí­ani, salti og pip­ar.
  2. Skerið græn­metið og leggið í botn­inn á eld­föstu móti.
  3. Setjið kjúk­ling­inn ofan á græn­metið og raðið síðan hvít­lauksrifj­un­um, ennþá í papp­írn­um, meðfram kjúk­lingn­um.
  4. Bakið í rúm­lega eina og hálfa klukku­stund eða þar til kjarn­hiti er kom­inn í 82 gráður.

Berið fram með hrís­grjón­um, sal­ati og ein­faldri velou­te-sósu

„Þessi réttur varð til á ferðalagi okkar fjölskyldunnar um Frakkland …
„Þessi rétt­ur varð til á ferðalagi okk­ar fjöl­skyld­unn­ar um Frakk­land haustið 2009,“ seg­ir Ragn­ar. youtu­be.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert