13 leiðir til að spara við matarinnkaupin

Það má vel komast hjá því að versla tóman óþarfa.
Það má vel komast hjá því að versla tóman óþarfa. Skjáskot Huffington Post

Eyðir þú allt of miklu í mat og ertu þessi týpa sem hend­ir helm­ingn­um af því sem þú kaup­ir inn? Ef þú vilt ekki eyða öll­um pen­ing­un­um þínum í mat skaltu halda áfram að lesa. 

Forðastu að grípa eitt­hvað með þér þegar þú stend­ur í röðinni

Þið langaði hugs­an­lega ekki í tyggjó, eða gos, fyrr en þú sást það fyr­ir fram­an þig þar sem þú stóðst í röðinni. Ef þú átt til að kippa sömu tíma­rit­un­um með þér heim er lík­lega ódýr­ara að fjár­festa í áskrift.

Ekki versla þegar þú ert svöng/​svang­ur
Ekki aðeins kaup­ir þú lík­lega meira af óþarfa, held­ur munt þú að öll­um lík­ind­um kaupa óþarf­lega mikið af óholl­um mat og sæl­gæti.

Skoðaðu hvað aðrar versl­an­ir hafa upp á að bjóða
Ef þú versl­ar alltaf í sömu versl­un­inni veistu ekki hvað aðrar búðir hafa upp á að bjóða. Það get­ur borgað sig að bregða út af van­an­um og prufa að gera inn­kaup­in í nýrri versl­un.

Gerðu kostnaðaráætl­un
Ef þú ert ekki með kostnaðaráætl­un er lík­legra að þú eyðir um efni fram. Það er mun auðveld­ara að for­gangsraða ef þú hef­ur ákveðið hversu miklu þú ætl­ar að eyða í mat á mánuði eða viku.

Haltu þig við inn­kaupal­ist­ann
Skrifaðu inn­kaupal­ista og haltu þig við hann. Með því móti er ólík­legra að mat­ur, sem þú hef­ur enga þörf fyr­ir, lendi í rusl­inu.

Gerðu verðsam­an­b­urð
Þetta kann að hljóma ein­falt, en neit­end­ur venja sig stund­um á að kaupa sömu vörumerk­in án þess að at­huga hvað sam­bæri­leg­ar vör­ur kosta.

Kauptu í magni
Það get­ur verið gott að kaupa vör­ur sem þú not­ar mikið í magn­pakkn­ing­um. Gakktu þó úr skugga um að var­an nýt­ist, ann­ars gæt­ir þú allt eins verið að henda pen­ing­um út um glugg­ann.

Kíktu í skáp­ana áður en þú versl­ar
Taktu stöðuna á birgðunum áður en þú versl­ar í mat­inn. Með því móti er ólík­legra að þú kaup­ir vöru sem renn­ur út og lend­ir í rusl­inu áður en þú get­ur notað hana.

Gefðu frosnu græn­meti gaum
Frosn­ir ávext­ir, og græn­meti, geym­ast ekki aðeins mun leng­ur en fersk­meti, held­ur er jafn­an mun ódýr­ara að versla frosna vöru.

Gerðu áætl­un
Ef þú átt það til að henda mat sem orðinn er út­runn­inn get­ur verið gott að skipu­leggja sig fram í tím­ann. Vendu þig á að gera áætl­un, vikumat­seðil eða að elda í stór­um skömmt­um sem duga þér í nokkra daga.

Gefðu niðursoðnum fisk tæki­færi
Það get­ur verið kostnaðarsamt að kaupa fersk­an fisk. Þess vegna er til­valið að nýta sér niðursoðinn fisk, sem kost­ar mun minna en sá ferski. Það má til dæm­is vel galdra fram hinn fín­asta mat með tún­fisks­dós að vopni.

Skiptu prótein­inu út
Marg­ir geta ekki hugsað sér kvöld­mat án þess að bjóða upp á kjöt og kart­öfl­ur. Það má þó vel út­búa staðgóða máltíð úr baun­um, sem eru sér­lega seðjandi og mun ódýr­ari kost­ur en kjöt.

Nýttu af­ganga
Vendu þig á að nýta af­gang­ana. Þú munt bæði spara pen­ing, auk þess sem það er betra fyr­ir nátt­úr­una að nýta öll þau hrá­efni sem þú kaup­ir til fulln­ustu.

 Fleiri góð ráð má lesa á vefsíðunni Self

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert