Myntu- og lárperuíspinnar

Hollir og ferskir íspinnar.
Hollir og ferskir íspinnar. mbl.is / Tobba Marinós

Þess­ir fag­ur­grænu íspinn­ar eru holl­ir og fljót­leg­ir í gerð.  Íspinn­ar eru nefni­lega til­val­in leið til að fá börn til að borða hollt hrá­efni á borð við lárperu.


1 væn og vel þroskuð lárpera
2 dl kó­kosrjómi eða venju­leg­ur rjómi
1 dl fersk mynta
½ tsk. límónusafi
2 dl frosið mangó eða einn vel þroskaður ban­ani
1-2 msk. hun­ang eft­ir smekk

Setjið öll inni­halds­efn­in í bland­ara og blandið uns silkimjúkt. Hellið blönd­unni í íspinna­mót og frystið yfir nótt. Ef skreyta á pinn­ana með myntu er gott að bleyta myntu­blað og raða þeim inn í íspinna­mótið áður en blönd­unni er hellt í mótið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert