Æt máling og regnbogabrauð

learnplayimagine.com

All­i­son Sonnier held­ur úti skemmti­legri vefsíðu þar sem hún býr gjarn­an til leir og máln­ingu sem má borða þó hún bragðist ekki endi­lega vel. Sonnier á fjóra drengi og á í fullu fangi með að hafa ofan af fyr­ir orku­bolt­un­um sín­um en hún er heima­vinn­andi og kenn­ir drengj­un­um sín­um heima. Drengj­un­um finnst mjög gam­an að mála og því býr Sonnier til æta máln­ingu svo að ef ein­hver þeirra freist­ast til að borða máln­ing­una er það ekk­ert til­töku­mál. Hún seg­ist þó gæta þess að mál­ing­in sé ekki of bragðgóð því þá sé voðinn vís enda er mat­ar­lit­ur í miklu mæli ekki æski­leg­ur þó vissu­lega megi nú kaupa mun betri mat­ar­liti en hér áður fyrr.

Hér að neðan er að finna upp­skrift að ætri máln­ingu. Máln­ing­una má nota á papp­ír – eða til að mála ristað brauð. Það er ör­ugg­lega stór­kost­leg byrj­un á af­mæl­is­degi að fá að mála sitt eigið brauð!

Í máln­ing­una þarftu aðeins tvö inni­halds­efni:
Niðursoðna sæta mjólk (sweet cond­en­sed milk)
Mat­ar­liti

Skiptu mjólk­inni í nokk­ur lít­il ílát.
Það er til­valið að nota álm­uff­ins­form ef þú átt slíkt.
Blandið svo mat­ar­lit út í og hrærið.
Mál­ing­in verður glans­andi og flagn­ar ekki af papp­ír.

Góða skemmt­un!

Ristað brauð verður varla hressara en þetta!
Ristað brauð verður varla hress­ara en þetta! le­arn­playimag­ine.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka