Kókópöffs-kokteillinn sem fólk er að tryllast yfir

Morgunmatur og kokteill í einu?
Morgunmatur og kokteill í einu?

Pablo diskób­ar er hress­andi bar við Ing­ólf­s­torg þar sem svita­bönd, diskókúla og flippaðir kokteil­ar ráða ríkj­um. Kokteill fyllt­ur upp með kókópöffs hef­ur náð mikl­um vin­sæld­um á stutt­um tíma. Viðburðafyr­ir­tæki sem bjóða upp á "pub crawl" eða skipu­lagða bartúra eru farn­ir að fara með hópa er­lendra ferðamanna á staðinn til að bragða her­leg­heit­in. 

„Þetta er fyrsti kokteill­inn sem ég setti sam­an eft­ir að ég réð mig hingað,“ seg­ir Ásgeir Már Björns­son, yf­ir­barþjónn á Pablo diskób­ar.

Ási yfirbarþjónn í banastuði.
Ási yf­ir­barþjónn í ban­astuði.

„Ég vissi að þetta átti að vera diskób­ar þjakaður af fortíðarþrá og því kafaði ég langt ofan í mína eig­in fortíð og upp kom kókópöffs! Þegar það var komið vantaði mig nafn og upp kom Puff the magic dragon-barna­sag­an en ég hlustaði líka svoldið á Flig­ht of the concords, Alby the racist dragon en það er ekk­ert pöffs í því. Bara grín.

„Svo hófst ég handa við að setja sam­an svona white russi­an fíl­ings-kokteil nema með tölu­vert bragðmeira inni­haldi, þar á meðal græn­um chartr­eu­se sem til­heyr­ir svoldið fortíðinni en var til á öll­um veit­inga­stöðum á Íslandi „í gamla daga“,“ seg­ir Ási og deil­ir hér með okk­ur fortíð í glasi.

Kókópöffs-kokteillinn sem fólk er að tryllast yfir

Vista Prenta

PUFF THE MAGIC DRAGON

45 ml ljóst romm
15 ml grænn chartr­eu­se
25 ml mjólk
30 ml hvítt súkkulaði og lemong­rass síróp (heima­gert) – eða hvítt súkkulaðis­íróp
1 dass Moz­art-súkkulaðibitter sem því miður er hætt að fram­leiða en hægt enn þá að eign­ast með króka­leiðum. Ann­ars má nota súkkulaðis­íróp í staðinn.

þetta er svo hrist og síað yfir klaka og toppað með kókópöffs.

Pablo diskóbar er hressandi staður með bleikum flamingófuglum, diskókúlu og …
Pablo diskób­ar er hress­andi staður með bleik­um flam­ingó­fugl­um, diskó­kúlu og svita­bönd­um. Árni Sæ­berg
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert