Frozen pasta Ólafs

Girnilegar pastarúllur úr ferskum lasagnaplötum.
Girnilegar pastarúllur úr ferskum lasagnaplötum.
Frozen-mat­reiðslu­bók­in hef­ur notið mik­illa vin­sælda en hún hef­ur að geyma gott safn af nær­ing­ar­rík­um fjöl­skyldu­upp­skrift­um. Bók­in kom út fyr­ir rúmi ári en stend­ur enn vel fyr­ir sínu. Mat­ar­vefn­um fannst til­valið að deila girni­legri pasta­upp­skrift frá Ólafi nú þegar stytt­ast fer í snjó­inn.

Frozen pasta Ólafs

Vista Prenta
Hrá­efni
4 fersk­ar lasagna­plöt­ur
2 kjúk­linga­bring­ur
1 egg
2 msk. létt­ur mascarpo­ne-
ost­ur
2 msk. mat­reiðslur­jómi
2 msk. ferskt basil, saxað
2 hvít­lauksrif, söxuð
salt og pip­ar
½ dós hakkaðir tóm­at­ar
2–3 skallot­lauk­ar, smátt
saxaðir
1 msk. ólífu­olía
1 msk. balsam­e­dik
1 tsk. hlyns­íróp
½ dl mozzar­ella-ost­ur, rif­inn
½ dl par­mes­an-ost­ur, rif­inn
2 ½ dl spínat
1 tsk. ólífu­olía

Aðferð

  1. Hitið ofn­inn í 180°C.
  2. Hitið ólífu­olíu á pönnu við meðal­há­an hita og steikið skallot­lauk­inn.
  3. Bætið tómöt­un­um sam­an við og hitið að suðu.
  4. Blandið balsam­e­dik­inu og hlyns­íróp­inu sam­an við.
  5. Kryddið með salti og pip­ar.
  6. Látið malla í nokkr­ar mín­út­ur.
  7. Hellið sós­unni í stórt eld­fast mót.
  8. Setjið kjúk­ling­inn, eggið, mascarpo­ne-ost­inn, basil-lauf­in og hvít­lauk­inn í mat­vinnslu­vél og blandið vel sam­an.
  9. Skerið hverja lasagna­plötu í tvennt.
  10. Setjið kjúk­linga­blönd­una á helm­ing­inn af hverri lasagna­plötu.
  11. Rúllið lasagna­plöt­un­um upp, setjið í eld­fasta mótið og látið sam­skeyt­in snúa niður.
  12. Snögg­steikið spínatið á pönnu á háum hita með ör­litlu af ólífu­olíu og raðið því á milli rúll­anna í eld­fasta mót­inu.
  13. Stráið mozzar­ella- og par­mes­an-ost­in­um yfir rúll­urn­ar og bakið í heit­um ofn­in­um í 30 mín­út­ur.

Related image

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert