Döðlugott með lakkrískurli

Döðlugott er sívinsælt gotterí en lakkrísinn gefur bitunum aukna gleði …
Döðlugott er sívinsælt gotterí en lakkrísinn gefur bitunum aukna gleði og áferð.
Jóla­bækling­ur Nóa Síríus er kom­inn í versl­an­ir en að þessu sinni er það hinn geysi­vin­sæli mat­ar­blogg­ari Berg­lind Guðmunds­dótt­ir á Gul­urRauður­Grænn&salt sem töfraði fram upp­skrift­irn­ar. Hér er ein ómót­stæðileg upp­skrift úr bæk­lingn­um. Upp­skrift­in gef­ur um það bil 25 stykki.

Döðlugott með lakkrískurli

Vista Prenta

Hrá­efni   

500 g döðlur, saxaðar smátt
250 g smjör
120 g púður­syk­ur
150 g Kellogg‘s Rice Krispies
400 g Síríus rjómasúkkulaði
2 pok­ar Nóa lakk­rísk­url

Aðferð

Döðlur og smjör brætt sam­an í potti. Púður­syk­ur­inn er brædd­ur með þangað til döðlurn­ar eru orðnar mjúk­ar.
Blandið Rice Krispies og lakk­rísk­urli sam­an við og setjið í form í frysti í 10 mín­út­ur. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið yfir Rice Krispies-blönd­una og frystið í um það bil 30 mín­út­ur.
Skerið í bita, berið fram og njótið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert