Morgunverðar-sushi sem slær í gegn

Stórskemmtilegt og gott morgunverðar-sushi fyrir hressa krakka.
Stórskemmtilegt og gott morgunverðar-sushi fyrir hressa krakka. Ljósmynd/RaisingWhasians.com

Morg­un­verðar-sus­hi kann að hljóma frek­ar miður en ekki hætta að lesa. Þetta er í raun al­gjör snilld og ein­stak­lega skemmti­leg leið til að fá börn­in til að borða morg­un­verð. Nú eða sem kvöld­verð. Ekki síst ef börn­un­um finnst sus­hi spenn­andi en finnst fisk­ur­inn eitt­hvað slepju­leg­ur en þá má vel bjóða upp á þenn­an rétt þegar aðrir á heim­il­inu borða sus­hi.

Að út­búa þessa snilld er í raun sára­ein­falt og stór­skemmti­legt. Sér­stak­lega kannski fyr­ir yngri börn­in sem vilja vera eins og for­eldr­arn­ir og borða með prjón­um. Það eina sem þú þarft að gera er að afhýða ban­ana, smyrja hann með jóg­úrt, skyri, ab-mjólk eða hverju sem þér dett­ur í hug (samt ekki maj­o­nesi).

Síðan tek­ur þú morgun­korn, mús­lí eða eitt­hvað með skemmti­legri áferð og velt­ir smurða ban­an­an­um upp úr því.

Síðan skaltu skera ban­an­ann í bita og loks skreyta hvern bita með fal­legu beri.

Flókið er það ekki.

Þetta banana-sushi ætti jafnvel heima á borði í barnaafmæli.
Þetta ban­ana-sus­hi ætti jafn­vel heima á borði í barna­af­mæli. Ljós­mynd/​Rais­ingWhasi­ans.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert