Hægeldað gin með greip

Helgarkokteillinn er hægeldaður og dásamlega góður.
Helgarkokteillinn er hægeldaður og dásamlega góður. Tobba Marinós

Hægeldað gin með greip

Vista Prenta

Hæg­eldað gin hvað er nú það? Það er sum sé gin sem eimað er mun leng­ur en hefðbundið er. Bragðið er því mýkra ef svo má að orði kom­ast. Maður drekk­ur það líka mun hæg­ar – eða ekki!

3 cl af Beefea­ter 24 eða öðru hæg­elduðu gini 
Fullt glas af klök­um
2 msk. fersk­ur greip­safi
1 tsk. aga­ves­íróp
Fyllt upp með Indi­an Tonic

Öllu nema tónik­inu er skellt í hrist­ara og hrist vel. Hellt í glas með slatta af klök­um og fyllt upp með tónik.

Skreytt með greipsneiðum. 

Brettið fagra er frá Borði fyrir tvo.
Brettið fagra er frá Borði fyr­ir tvo. Golli / Kjart­an Þor­björns­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert