Hinn fullkomni Whiskey Sour

Ekki er nauðsynlegt að hafa kirsuberjasafa með en það er …
Ekki er nauðsynlegt að hafa kirsuberjasafa með en það er dálítið dramatískt verður að segjast. Skjáskot af The Kitchn

Það er fátt flott­ara en fag­mann­leg­ir takt­ar við bar­störf. Ef lág­marksþekk­ing á vin­sæl­um kokteil­um fylg­ir með er um als­lemmu að ræða og ljóst að árs­hátíðarpartýið er í góðum hönd­um.

Góður Whi­skey Sour er ekki á allra færi enda ekki eitt­hvað sem þú sull­ar sam­an með kokteil­blöndu og gosi. Al­vöru Whi­skey Sour inni­held­ur gott whi­skey, sítr­ónusafa, syk­ur síróp og lítið egg.

Við kennd­um ykk­ur að gera sírópið hér:
Sjá frétt mbl.is: Heima­gert síróp sem slær í gegn

Og nú kenn­um við ykk­ur að nota það.

Upp­skrift­in af Whi­skey Sour er svohljóðandi:

Hinn fullkomni Whiskey Sour

Vista Prenta
Whi­skey Sour
  • 2 hlut­ar Whi­skey
  • 1 hluti nýkreist­ur sítr­ónusafi
  • 3/​4 hluti syk­ur síróp
  • 1 eggja­hvíta
  • klaki
  • kirsu­ber

Áhöld

  • Kokteil­hrist­ari
  • Sigti
  • Mæliglas
  • Coupe glas
  • Kokteilp­inni eða prjónn fyr­ir kirsu­berið

Aðferð

  1. Setjið whi­skey-ið, sítr­ónusafa, síróp og eggja­hvítu og hristið af ákafa í 10 sek­únd­ur.
  2. Bætið klak­an­um við og hristið í aðrar 10 sek­únd­ur eins og þið meinið það. Munið að loka hrist­ar­an­um.
  3. Sigtið ofan í glasið (til að klak­inn fari ekki með).
  4. Skreytið og drekkið var­lega.
Hvíta froðan er eignuð eggjunum sem binda kokteilinn saman og …
Hvíta froðan er eignuð eggj­un­um sem binda kokteil­inn sam­an og gefa hon­um pró­tín. Skjá­skot af The Kitchn
Hægt er að nota hefðbundið heimilissigti ef svo ber við.
Hægt er að nota hefðbundið heim­il­is­sigti ef svo ber við. Skjá­skot af The Kitchn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert