Kjötzza með ferskum mozzarella og basil

Ítalía ákallar mig í hverjum bita af þessari gleði.
Ítalía ákallar mig í hverjum bita af þessari gleði. mbl.is/Tobba Marinós

Ég elska ít­alsk­an mat en eins og marg­ir mætti ég al­veg minnka við mig kol­vetn­in. Því fékk ég fiðring í mag­ann þegar ég rakst á upp­skrift frá þokkagyðjunni Nig­ellu af brauðlausri pizzu sem hún kall­ar kjötzzu.

Ég breytti upp­skrift­inni ör­lítið eft­ir eig­in smekk og út­kom­an var æðis­lega þykk og djúsí kjöt­baka sem öskr­ar Ítal­ía og kall­ar á gott rauðvín. Meira að segja tveggja ára dótt­ir mín borðaði vel af matn­um án þess að ákalla skyr í öðrum hverj­um bita.

Gott er að hafa fersk­an par­mes­an á kant­in­um, hvít­lauk­sol­íu og sal­at.

Botninn fyrir bakstur.
Botn­inn fyr­ir bakst­ur. mbl.is/​Tobba Marinós

Kjötzza með ferskum mozzarella og basil

Vista Prenta

Botn­inn:

500 g gott nauta­hakk
3 msk. rif­inn par­mesanost­ur
3 msk. brauðmylsna eða gróft haframjöl (ég nota súr­deigs­brauðmylsnu)
3 msk. söxuð basilíka
1 msk. ít­alskt krydd
2 egg léttþeytt
½ hvít­lauk­ur pressaður
Salt og pip­ar eft­ir smekk
Olía til að smyrja formið

Álegg:

400 g dós af niðursoðnum tómöt­um (með hvít­lauk og basil)
1 lít­il dós tóm­at­púrra
2 hvít­lauksrif, pressuð
1 tsk. pizzakrydd ,t.d. frá Potta­göldr­um
1 mozzar­ellakúla (125 g)
1 bolli rif­inn ost­ur
Nokk­ur basilíku­lauf
Furu­hnet­ur

Meðlæti:

Hvít­lauk­sol­ía
Kon­fekt­tóm­at­ar
Kletta­sal­at
Par­mes­an
Sítr­óna

Leiðbein­ing­ar

1. Blandið með hönd­un­um sam­an í skál hakki, par­mesanosti, brauðmylsnu eða höfr­um, basilíku, ít­alska krydd­inu og eggj­um.

2. Rífið út í eða fínsaxið hvít­lauk og saltið og piprið.

3. Blandið sam­an en var­ist að of­hræra svo kjötið fái ekki þunga og klessta áferð.

4. Smyrjið grunnt kringl­ótt bök­un­ar­form, um 28 cm í þver­mál, og skellið kjöt­inu í það.

5. Þrýstið blönd­unni létt niður með fingr­un­um svo hún þeki botn­inn eins og pizzu­botn.

6. Gætið þess að hella eins miklu af vökv­an­um og hægt er úr dós­inni með niður­skornu tómöt­un­um. Blandið svo pizzakryddi, tóm­at­púrr­unni, hvít­lauk, salti og pip­ar sam­an við og smyrjið mauk­inu létt yfir kjöt­grunn­inn.

7. Dreifið rifn­um osti yfir, raðið mozzar­ellasneiðum ofan á og setjið í 220°C heit­an ofn í 20-25 mín­út­ur en þá ætti kjötið að verða gegn­steikt og stíft og mozzar­ella­ost­ur­inn bráðnaður. At­hugið að stund­um kem­ur dá­lítið vatn ofan á bök­una sem kem­ur úr tómöt­un­um og kjöt­inu. Þá kippi ég elsk­unni út og þerra vatnið með papp­ír og set hana aft­ur inn. Það er líka gott að setja 2 msk. af furu­hnet­um ofan bök­una eft­ir þurrk­inn og leyfa henni svo að klára að bak­ast.

8. Takið kjötzzuna úr ofn­in­um og látið hana bíða í 5 mín­út­ur.

9. Skreytið með basilíku­lauf­um og fersk­um tómöt­um.

Mér finnst stór­kost­legt að hafa ferskt kletta­sal­at og tóm­ata með og raspa ör­lítið af par­mesanosti og sítr­ónu­berki yfir.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert